156. löggjafarþing — 9. fundur,  3. mars 2025.

lokun austur/vesturbrautar Reykjavíkurflugvallar.

117. mál
[15:47]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við í Miðflokknum fögnum auðvitað þessari skýrslubeiðni og sömuleiðis því að málið verði tekið upp á vettvangi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Þetta er búin að vera slík þrautaganga um ára- og áratugaskeið í raun, skilyrði flugvallarins, að ég bara fagna hverju því sem hæstv. samgönguráðherra getur fengið sem stuðning, vopn, í þeim slag sem nauðsynlegt er að verði tekinn fyrir veru flugvallarins í Vatnsmýrinni og forsvaranleg rekstrarskilyrði þar, enda algerlega ótækt að staða sú sem við kynntumst í þessu samhengi og rædd var í velferðarnefnd í þarsíðustu viku komi upp. Það má leggja mikið á sig til að fyrirbyggja að slík staða geti komið upp aftur. Partur af því er þessi skýrslubeiðni og sömuleiðis vinnan í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.