156. löggjafarþing — 9. fundur,  3. mars 2025.

lokun austur/vesturbrautar Reykjavíkurflugvallar.

117. mál
[15:49]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Mér finnst flestir þeir hv. þingmenn sem hér hafa talað lýsa málinu ágætlega. Ég vildi bara nota tækifærið og þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir að hafa vakið athygli á þessu og barist í þessu máli um langa hríð. Þetta er furðulegt mál, óskiljanlegt og skaðlegt fyrir alla og sérstaklega er alvarlegt þegar við erum að horfa á að það sé hætta hjá fólki sem þarf að komast á spítalann okkar. Ég held að það skipti líka máli að benda á það sem vel er gert og hér hefur hv. þingmaður svo sannarlega sýnt þrautseigju, elju og ég vona að það skili þeim árangri að við þurfum ekki að horfa upp á þessar furðuuppákomur sem eru stórhættulegar, að við séum hér að loka á öryggi landsmanna.