156. löggjafarþing — 9. fundur,  3. mars 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[16:50]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Þetta er stórt mál sem við ræðum hér í dag og við byrjuðum góða umræðu fyrir kjördæmaviku um þetta mál. Það voru ágæt skoðanaskipti sem fóru fram í andsvörum áðan milli hæstv. ráðherra og hv. þingmanns um það hvernig eigi að fara með það sem sett er í vernd og þann skilning sem kemur fram hjá hæstv. ráðherra. Þetta er eiginlega algjört grundvallaratriði og þess vegna er mjög mikilvægt að þingið átti sig á hvað er verið að gera ef þessi skilningur á að ráða för, vegna þess að það er náttúrlega erfitt að taka skrefið til baka ef samfélag okkar sér fram á út frá t.d. þjóðaröryggi, efnahagslegum þáttum eða samfélagslegum hvernig eigi að fara með þetta.

Það sem margir gerðu athugasemdir við þegar 3. áfangi rammaáætlunar var tekinn fyrir á sínum tíma var að vinna hóps þrjú og fjögur, samfélagslegi þátturinn og efnahagslegi þátturinn, var aldrei kláruð að fullu. Það var komin tímaþröng og það þurfti klára rammann og því var þessi þáttur aldrei kláraður. Síðan hefur bæst við það mikilvæga atriði sem ég hef verið að benda á í þessu máli og mörgum öðrum, að þetta snýst bara almennt um þjóðaröryggismál á Íslandi, hvort sem það er raforkuframleiðslan eða flutningskerfi raforku, sem er búið að tefja áratugum saman með ótrúlegum leiðindum, því seinkað og það hefur haft og er farið að hafa mikil áhrif í dag. Samfélagið er að tapa milljörðum ef ekki tugum milljarða á ári vegna þess að við höfum ekki getu í samfélaginu til að klára að byggja upp línurnar eða flutningskerfið, háspennta kerfið. Sú vegferð er hafin af þó nokkrum krafti á undanförnum árum. Kröflulína 3 er komin inn og Hólasandslína 3 þannig að búið er að tengja Fljótsdalsstöð við Akureyri. Hafin var vinna í sumar við Suðurnesjalínu 2 og síðan er Landsvirkjun farin í umhverfismat og annað hvað varðar Holtavörðuheiðarlínu 1 og 3 og verkefnahópur er farinn af stað með Blöndulínu 3. Þetta er allt gríðarlega mikilvægt út frá þjóðaröryggi. En þetta atriði, eins og við höfum rætt aðeins í dag og fyrir kjördæmaviku, sem snýr að því að virkja vatnsaflið, sem er gríðarlega mikilvægt í kerfinu okkar, að nýta þau landsvæði sem eru á öruggustu svæðunum — sérstaklega verður að benda á Héraðsvötnin, vatnasvið þess og þá virkjunarkosti sem hafa verið uppi þar. Hér er verið að flytja marga af þeim kostum aftur í bið eftir að hæstv. umhverfis- og samgöngunefnd hafði á sínum tíma við afgreiðslu rammaáætlunar 3 tekið þá úr verndarflokknum og sett yfir í bið. Nú er aftur verið að vísa þessu yfir í verndina og þá kemur enn þetta sjónarmið: Er rétti tímapunkturinn til að taka svo drastískar ákvarðanir á þessum tíma?

Við þekkjum Holuhraun 2014, við þekkjum þessa umræðu. Ég talaði reyndar um 17. öld áðan með Veiðivötnin, þegar Ljótipollur hafði mikil áhrif á Veiðivötnin og var það hluti af Bárðarbungugosi. Það var 1477. Ég gúglaði þetta svo það kæmi rétt fram í þingskjölum. Þetta eru nefnilega bæði jarðhræringar og hraun og svo náttúrlega þessi stóru flóð sem geta komið úr Bárðarbungu og undan Vatnajökli, eftir því hvar gosið kemur upp þá fer það í mismunandi vatnasvið, hvort sem það er Þjórsá, Skjálfandi eða Jökulsá á Fjöllum. Þetta þurfum við allt að hafa í huga. Eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson sagði áðan þá verðum við aldrei nógu undirbúin. Ég held að það sé raunverulega það sem við þurfum að hafa í huga í dag og þessi nýja heimsmynd sem er að skapast, fyrir utan þær jarðhræringar sem eru hérna. Það er nákvæmlega þetta: Við erum aldrei nógu undirbúin og þurfum að gera okkar allra besta sem snýr að því.

Síðan er það líka að þegar við ætlum að rafvæða Ísland, það eru stór markmið um það, og hætta að treysta á jarðefnaeldsneyti, þá höfum við svo ótrúlega þörf fyrir raforku og öflugt raforkukerfi og erum að gjörbreyta allri okkar nálgun í þessu. Það sem við erum að ræða hér er raunverulega bara risastórt þjóðaröryggismál. (Forseti hringir.) Þess vegna legg ég til að við setjum sem mest af kostum í bið og forðumst það á þessum tímapunkti að fara með hluta yfir í verndina.