156. löggjafarþing — 9. fundur,  3. mars 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[17:17]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995. Frumvarpið er liður í því að bregðast við þeirri stöðu sem uppi er í Grindavíkurbæ vegna þeirra jarðhræringa á Reykjanesskaga sem nú standa yfir og er unnið að beiðni Grindavíkurbæjar og í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Í frumvarpinu er lagt til að framlengd verði heimild fyrir Grindavíkurbæ til að lækka eða fella niður álagðan fasteignaskatt sveitarfélagsins á árinu 2024 eða færa gjalddaga fasteignaskatts.

Forsaga þessa máls er sú að í ljósi þeirrar óvissu sem uppi var um búsetu í Grindavíkurbæ á árinu 2024 vegna þeirrar náttúruvár sem steðjar að sveitarfélaginu samþykkti Alþingi hinn 7. febrúar 2024 breytingalög nr. 4/2024 við lög um tekjustofna sveitarfélaga. Með lögunum voru Grindavíkurbæ m.a. veittar sérstakar heimildir til að fella niður fasteignaskatta og færa gjalddaga þeirra á árinu 2024. Lagasetningin byggði á þeim forsendum að ákvæði stjórnarskrár lýðveldisins um skattamálefni og gjaldtökuheimildir sveitarfélaga og almenn stjórnskipunar- og stjórnsýsluleg jafnræðissjónarmið geri þá kröfu að sveitarfélögum sé ekki heimilt að taka ákvörðun um að leggja á skatt, breyta honum eða afnema hann í heild eða að hluta nema á grundvelli lagaheimildar. Þar sem ekki var að finna skýrar heimildir í lögum um heimild sveitarfélags til að fella niður fasteignaskatta vegna náttúruvár eða annarra neyðarsjónarmiða óskaði Grindavíkurbær eftir að slíkar heimildir yrðu færðar í lög til að enginn vafi léki á því að sveitarfélaginu væri heimilt að lækka eða fella niður álagða fasteignaskatta sveitarfélagsins með lögmætum hætti. Jafnræðissjónarmiðin skiptu ekki síst máli þar sem vafi kynni að leika á hvort sveitarfélaginu væri heimilt að innheimta fasteignaskatta af aðilum sem gætu nýtt fasteignir sínar ef sveitarfélagið felldi fasteignaskatta niður hjá öðrum fasteignaeigendum.

Þess ber að geta að í úrskurði yfirfasteignamatsnefndar nr. 3/2024 frá 3. september 2024 reyndi á gildi þeirra ákvæða sem lagt er til með frumvarpi þessu að verði framlengd. Í málinu var kærð sú ákvörðun Grindavíkurbæjar að leggja fasteignaskatt á atvinnuhúsnæði utan þéttbýlis en falla frá fasteignaskatti á öðrum stöðum. Niðurstaða nefndarinnar var sú að mat sveitarfélagsins á þeim fasteignum sem fallið var frá álagningu fasteignaskatts á hafi verið málefnalegt og grundvallast á þeim atriðum sem mælt var fyrir um í ákvæðum þeirra laga sem hér um ræðir. Er því ljóst að nauðsynlegt er að framlengja lagaheimildir Grindavíkurbæjar til að fella niður fasteignaskatta eins og lagt er til í frumvarpi þessu.

Eins og rakið er í greinargerð frumvarpsins hefur mikil breyting orðið á eignarhaldi á íbúðarhúsnæði í Grindavík síðastliðið ár. Á grundvelli laga nr. 16/2024, um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, hefur nánast allt íbúðarhúsnæði færst úr eigu einstaklinga til Þórkötlu, sem er í eigu ríkisins eins og kunnugt er. Þórkatla er undanþegin frá greiðslu fasteignaskatts vegna þeirra fasteigna sem keyptar eru á grundvelli sömu laga þar til þeim hefur verið komið í almenna nýtingu á ný með útleigu eða sölu. Þessi breytta staða undirstrikar að forsendur til álagningar fasteignaskatta í Grindavík eru ólíkar því sem almennt gerist. Þar sem enn ríkir óvissa um búsetu í Grindavíkurbæ og aðstæður eru þannig að íbúar og sum fyrirtæki geta ekki notað eignir sínar í Grindavík til fulls vegna óvissuástands er lagt til að lagalegar heimildir Grindavíkurbæjar til að fella niður fasteignaskatta í heild eða að hluta verði framlengdar og gildi fyrir fasteignaskatt í sveitarfélaginu sem lagður er á á árinu 2025.

Virðulegur forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.