156. löggjafarþing — 9. fundur,  3. mars 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[17:27]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að er einmitt: Hvað er verið að gera til að draga úr þörfinni á þessu? Ef okkur tekst að heimila samfélaginu, Grindavík, hvort sem það er atvinnustarfsemi, íbúar, rekstur sveitarfélagsins, að aðlagast þeim aðstæðum sem við höfum lært á núna í þessum undanförnum sjö gosum — við erum búin að átta okkur svolítið á aðstæðunum sem mér finnst hafa dregið úr óvissunni og það hvernig þróunin hefur verið hefur upplýst margt. Hvað ætlum við að gera til þess að hraða því að Þórkatla þurfi ekki þessa undanþágu og geti farið að borga full fasteignagjöld? Þá getur sveitarfélagið farið að sinna þessari þjónustu sem önnur sveitarfélög eru að fá á sig núna. Með aðgerðum ríkisstjórnarinnar og líka bara hvernig við nálgumst þetta mál þá tel ég að hægt sé að hraða þessu, að atvinnustarfsemi byggist hraðar upp og dragi úr þessari þörf.

Ég vil líka spyrja að því hvort það var eitthvað metið hvort hægt væri að breyta þessari undanþágu. Það eru á milli 30–40 fyrirtæki í fullum rekstri í Grindavík í dag sem þurfa ekki á þessu að halda og það eru sambærileg fyrirtæki rétt utan við bæjarmörkin sem þessi undanþága nær ekki til þannig að það er ekki jafnræði þar á milli. Hvað er verið að gera til þess að draga úr þessari þörf til þess að við getum hraðað því að fasteignagjöld, hvort sem það er atvinnulíf eða íbúar, verði greidd til þess að sveitarfélagið geti staðið undir sinni lögbundnu þjónustu og hafið uppbygginguna? Var skoðuð einhver önnur útfærsla þannig að þeir sem eru í fullri starfsemi og eru í fullri búsetu í Grindavík greiði fasteignagjöld til þess að draga úr líkum á því að það þurfi að gera einhverjar ráðstafanir við næstu sveitarstjórnarkosningar?