156. löggjafarþing — 9. fundur,  3. mars 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[17:55]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég er að einhverju leyti á svipuðum nótum og hv. þingmaður sem talaði á undan mér en kannski fyrst og fremst svona að leggja áherslu á það að þegar við förum í lagabreytingar út frá einhverri neyð, eins og við höfum svo sannarlega gert eftir það sem gerðist á Reykjanesskaga og tengist Grindavík — og við höfum gert það á nokkrum lagabálkum, við tókum almannavarnirnar fyrir og við felldum ýmis lög úr gildi til að hægt væri að byggja frábæra varnargarða sem hafa svo sannarlega sannað gildi sitt og þetta hefur verið gert á ýmsum lagabálkum — þá finnst mér svo mikilvægt að við höfum það í huga að framlengja slíkt ekki endalaust heldur horfa á hvar við stöndum í dag og hvernig við ætlum að bregðast við til lengri tíma litið.

Þess vegna velti ég því fyrir mér, og ég beini því til nefndarinnar sem fær þetta til umfjöllunar — sem líklegast verður umhverfis- og samgöngunefnd, ég geri ráð fyrir því að það sé nefndin sem hafi talað um þetta mál áður — og ég beini því líka til hæstv. ráðherra og inn í ráðuneytið hans, að huga svolítið að næstu skrefum. Ég heyrði hvað hæstv. ráðherra sagði í framsögu sinni og stóra spurningin er auðvitað framtíð Grindavíkur. Hv. þm. Vilhjálmur Árnason kom ágætlega inn á sína sýn á það að leyfa Grindavík að vera þar sem hún er og nýta þá krafta sem búa í því samfélagi og leyfa fólki að ákveða sjálft hvort það vill búa og starfa í Grindavík. Ég held að það séu mjög mikilvæg sjónarmið. Ég hef reyndar líka velt því upp hvort þeir atburðir sem þarna hafa átt sér stað kalli á einhverja frekari skoðun á lagaumgjörðinni okkar. Ég er kannski sérstaklega að vísa í skipulagslögin og þá hluti sem lúta að því hvar við getum leyft byggð og hvar ekki, hvar þurfi að vera sérstakar ráðstafanir og hvar ekki. Ég beini því til hæstv. ráðherra að hann skoði það svolítið.

Af því að ég las greinargerðina, ég verð að viðurkenna að ég tók ekki þátt í afgreiðslunni á sínum tíma þegar við fórum með þetta í gegn en ég skil það svo, og hv. þm. Vilhjálmur Árnason kom einmitt inn á það, að þetta eigi ekki við um Þórkötlu því að þar eru sérlög. Ég hélt, fyrst þegar ég las þetta í gær, að við værum í rauninni fyrst og fremst að reyna að vera góð við sjálf okkur hérna með því að fella niður fasteignagjöld af ríkisapparatinu Þórkötlu, en það var víst ákveðið sérstaklega í sérlögum um Þórkötlu að það væru ekki greidd fasteignagjöld af þeim eignum sem þar lægju. En ég velti samt fyrir mér, bara svona út frá jafnræðinu og hér erum við að ræða um skatta, að þegar ég les þessar heimildir yfir og ég sé hér í greinargerðinni að yfirskattanefnd hafi komist að þeirri niðurstöðu að Grindavíkurbær hafi farið rétt að í samræmi við þessi bráðabirgðalög, þá finnst mér þetta samt umhugsunarefni. Annars vegar erum við að tala um þéttbýli og dreifbýli og atvinnustarfsemi eftir því hvernig svæðin eru skilgreind. Ég segi bara, virðulegur forseti, að við þurfum augljóslega að fara ofboðslega varlega í því þegar við setjum slík bráðabirgðaákvæði er varða skatta þar sem við gefum ákveðið svigrúm til að einhverjir séu undanþegnir en aðrir ekki. Það var skiljanlegt þegar þetta var gert í fyrsta skiptið, við vorum jú í ákveðnu neyðarástandi þá og þurftum að bregðast við hratt og þetta var lausn sem fólki hugnaðist mjög vel þá. En ég tek bara undir með báðum hv. þingmönnum sem hafa talað hér, bæði Guðbrandi Einarssyni og Vilhjálmi Árnasyni, að við erum á aðeins öðrum stað í dag en við vorum þá. Þar af leiðandi þurfum við að huga að því, og það er ekki bara í þessu máli hér sem lætur kannski lítið yfir sér, og líka bara í heildarsýn okkar á hver framtíð Grindavíkur verður, hvernig við ætlum að vinna með fólkinu í Grindavík og Grindavíkurnefndinni og bæjarstjórn Grindavíkur að því að byggja þetta samfélag upp aftur. Þannig að ég segi bara, virðulegur forseti, að ég hvet nefndina til að skoða þetta sérstaklega. En ekki síst hvet ég hæstv. ráðherra til að skoða það vel inni í sínu ráðuneyti sem ráðherra sveitarstjórnarmála hvernig við hugum að þessu.

Ég beini því líka til hæstv. ráðherra að það sé rætt í ríkisstjórn því að við vitum að þetta eru málaflokkar sem heyra undir marga ráðherra. Einn er skipulagsmálin, sem ég ræddi hér áðan sem ég held að falli undir umhverfisráðherra, nema hæstv. … (Samgrh.: Húsnæðis- og félagsmálaráðherra.)— Húsnæðis- og félagsmálaráðherra, já. Það er ekki nema von að þingmenn ruglist í þessu þegar verið er að hreyfa málaflokka stöðugt á milli ráðuneyta — en ekki síður dómsmálaráðherra út frá almannavörnunum, því að ég minnist þess að ég og hæstv. ráðherra vorum saman í hv. allsherjar- og menntamálanefnd á síðasta kjörtímabili og þar vorum við líka að framlengja ákveðin bráðabirgðaákvæði sem við höfðum þá veitt dómsmálaráðherra til að bregðast við ástandi á svæðinu. Þar styttum við einmitt tímann og hvöttum ráðuneytið til að skoða sérstaklega þessi framtíðarmál. Þannig að það eru í rauninni bara skilaboð mín hér í þessa umræðu: Við megum ekki stimpla þetta og afgreiða bara sem framlengingu á einu neyðarbrauðinu í viðbót. Við þurfum að hugsa lengra og til lengri framtíðar.