156. löggjafarþing — 9. fundur,  3. mars 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[18:13]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér líður eins og við séum að ræða málefni Grindavíkur í mars 2024 en ekki í mars 2025. Hér talar hæstv. ráðherra um flóttaleiðir sem voru merktar af stjórnvöldum fyrir löngu síðan og eru vel merktar í Grindavík. Hann talar hér um að það þyrfti að girða af sprungur. Það eru margir mánuðir síðan stjórnvöld settu peninga í að girða af sprungurnar. Þetta er allt komið. Ég bið hæstv. ríkisstjórn um að hætta að hafa vit fyrir fullorðnu fólki og leyfa því að bera ábyrgð á sér sjálft, ekki koma með óundirbúið frumvarp inn í þingið. Ég vil geta verið með þverpólitíska sátt um málefni Grindavíkur hér eins og hefur alltaf verið og ég hef verið mjög þakklátur fyrir, en þegar er komið með svona óundirbúið og óskoðað mál — ég veit að þetta er heimild fyrir Grindavíkurbæ en Grindavíkurbær hefur samt ekki heimild til að velja þá úr sem raunverulega þurfa á þessari heimild að halda. Annaðhvort verður að gefa öllum innan þéttbýlisins frest á fasteignagjöldum eða engum samkvæmt þessu frumvarpi. En það eru aðeins þeir sem geta ekki nýtt sína fasteign, hvort sem það er fyrirtækja- eða íbúðarhúsnæði, sem þurfa þessa heimild. Þannig að ég bið bara um þetta. Ástæðan fyrir því að fólk getur ekki hraðað för sinni til Grindavíkur og tekið ákvörðun um það sjálft hvort það vilji búa þar eða ekki, íbúinn sem hæstv. ráðherra sagði að ætti að fá að ráða sér sjálfur, er sú að fyrirtæki í ríkiseigu, Þórkatla, segir að það muni enginn fá gista í þeirra húsnæði á meðan það er enn þá landris.