tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Lokaorð þingmannsins endurspegla auðvitað þessa stöðu sem er núna í gangi, þ.e. að íbúar geta ekki gist þarna meðan það er enn þá landris. Meðan það er enn þá landris er enn þá hætta á eldgosi, svo einfalt er það. Í þessu máli er það alveg kristaltært að það er ekki hægt að leggja fasteignaskatta á fasteignir sem ekki eru nýttar vegna jarðhræringa. Það á við um íbúðir sem Þórkatla er búin að kaupa og íbúar Grindavík eru búnir að selja til Þórkötlu. Það á líka við um aðrar fasteignir sem eru ekki nýttar þannig að það er óeðlilegt að leggja skatta á þær. Ég veit að flokkur hv. þingmanns er ekki hlynntur sköttum og alveg örugglega ekki á fasteignir sem ekki eru nýttar þannig að við hljótum að vera sammála um það. Þarna er þessi heimild gefin til Grindavíkur, að falla frá fasteignasköttum á íbúðir sem ekki eru nýttar. Hins vegar með íbúðir sem eru nýttar í dreifbýli, það er eðlilegt að einstaklingar borgi fasteignaskatta af þeim. Það er mín skoðun og ég tel að það sé málefnalegt.
Varðandi íbúa Grindavíkurbæjar hefur þeim fækkað mjög mikið á aðeins einu ári, þ.e. úr 3.575 íbúum í byrjun árs 2024 í 1.356 í byrjun þessa árs. Þetta er fækkun um 2.220 íbúa sem þýðir 62,1% fækkun íbúa með lögheimili í Grindavík. Fækkunin er reyndar komin í 1.100 núna. Þetta eru mikið einstaklingar sem ekki dvelja þarna. Þessi breytta staða undirstrikar það að forsendurnar til álagningar fasteignagjalda eru mjög ólíkar því sem almennt gerist. Þess vegna er verið að framlengja þessa heimild. Við erum ekki komin í þann fasa að íbúar séu farnir að flytja til baka. Það er önnur umræða. Það er annað mat. Ég hef talað fyrir því að það þurfi að taka tillit til íbúanna og þetta á að gerast á forsendum íbúanna. Ég get tekið dæmi, ég flutti (Forseti hringir.) sjálfur gosnóttina frægu úr Heimaey, ég hef lesið bók föður míns um það þegar íbúum var meinað að fara í húsnæði sitt og annað slíkt. (Forseti hringir.) Ég veit að það eru íbúarnir sem skipta máli og þannig eiga stjórnvöld að líta á það.