156. löggjafarþing — 9. fundur,  3. mars 2025.

greiðslur yfir landamæri í evrum.

111. mál
[18:34]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til nýrra laga um greiðslur yfir landamæri í evrum. Frumvarpið felur í sér tillögu um innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2021/1230 um greiðslur yfir landamæri innan sambandsins. Enn fremur er frumvarpinu ætlað að tryggja áframhaldandi lagagildi ákvæða reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 260/ 2012 um að koma á tæknilegum og viðskiptalegum kröfum um millifærslur fjármuna og beingreiðslur í evrum. Markmið beggja reglugerðanna er að einstaklingar og fyrirtæki eigi kost á samræmdri, öruggri, notendavænni og áreiðanlegri greiðsluþjónustu í evrum á samkeppnishæfu verði innan EES. Einnig að tryggja á sama tíma að gjöld fyrir greiðslur í evrum til annarra EES-ríkja skuli vera þau sömu og fyrir samsvarandi greiðslur innan lands í innlendum gjaldmiðli.

Evrópureglugerðin frá árinu 2012 hefur þegar lagagildi samkvæmt lögum um greiðslur yfir landamæri í evrum, nr. 78/2014. Með frumvarpinu er lagt til að sú reglugerð verði áfram í gildi en að áðurnefndri Evrópureglugerð frá árinu 2021 verði jafnframt veitt lagagildi. Sú reglugerð felur í sér endurútgáfu á reglugerð 924/2009 um greiðslur yfir landamæri innan Evrópusambandsins þar sem ætlunin er að draga saman á einum stað breytingar á regluverkinu til einföldunar, skýringarauka og bætts aðgengis almennings.

Forseti. Veigamesta breytingin sem lögfesting frumvarpsins myndi hafa í för með sér er líklega rýmkun meginreglu um jöfn gjöld fyrir greiðslur í evrum yfir landamæri. Nú gildir sú regla að gjöld greiðsluþjónustuveitenda fyrir greiðslur í evrum til annars EES-ríkis skuli vera þau sömu og fyrir samsvarandi greiðslur innan lands í evrum. Rýmkuð meginregla felur í sér að gjöldin skulu vera þau sömu og samsvarandi greiðslur innan lands í innlendum gjaldmiðli. Rýmkuð meginregla hefur mun meiri þýðingu fyrir aðildarríki sem styðjast við annan gjaldmiðil en evruna, líkt og Ísland.

Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands kostaði rafræn millifærsla í evrum af bankareikningi í eigu einstaklings á Íslandi inn á bankareikning innan EES-svæðisins að meðaltali 750 kr. árið 2023. Seðlabankinn áætlar að heildarkostnaður einstaklinga af slíkum millifærslum hafi numið um 130 millj. kr. árið 2023. Sambærilegar greiðslur innan lands í íslenskum krónum eru almennt gjaldfrjálsar. Fyrirséð er því að breytingin hafi töluverð áhrif á gjaldtöku vegna greiðslna yfir landamæri í evrum, til sparnaðar fyrir greiðendur en lækkunar á tekjum greiðsluþjónustuveitenda. Lagasetningin leiðir einnig til bættrar upplýsingagjafar til greiðenda um gjöld vegna gjaldmiðilsumreiknings.

Ekki er talið að lögfesting frumvarpsins hafi verulegar stjórnsýslulegar afleiðingar í för með sér eða auki kostnað ríkissjóðs.

Forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og svo til 2. umræðu hér á þinginu.