Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það voru vondar fréttir sem við fengum í gær, Vestfirðingar, að Icelandair ætlaði að hætta áætlunarflugi til Ísafjarðar á næsta ári. Innanlandsflugið skiptir þær byggðir miklu máli sem fjærst eru höfuðborgarsvæðinu þar sem öll grundvallarþjónusta landsmanna er staðsett, hvort sem um ræðir heilbrigðisþjónustu, stjórnsýslu, verslun, þjónustu menntastofnana og annarra þjónustustofnana sem sinna öllu landinu. Atvinnulíf hefur verið að byggjast hratt upp undanfarin ár á Vestfjörðum með öflugu fiskeldi og ferðaþjónustu og afleiddum störfum í kringum þessar greinar. Öruggar flugsamgöngur eru nauðsynlegur þáttur í uppbyggingu og eiga að vera valkostur fyrir íbúa svæðisins sem hluti af almenningssamgöngum í nútímaþjóðfélagi. Það er vissulega orðið allt of dýrt að fljúga innan lands en niðurgreiðslur sem fylgdu Loftbrúnni til íbúa þessara staða hafa skipt miklu máli og það hefur ríkisstyrkur til Icelandair og annarra innanlandsflugfélaga einnig gert. Þótt vegasamgöngur fari hægt og sígandi batnandi koma þær ekki í staðinn fyrir flug þegar fólk þarf að komast til læknis eða sinna öðrum erindum á sem skemmstum tíma vegna vinnu sinnar eða sökum aldurs eða annarra þátta. Icelandair réttlætir ákvörðun sína með skipulagsbreytingum, að Grænlandsflugið sé að hætta og sú stærð véla sem hafa þjónað Ísafirði og Grænlandi leggist af, en Icelandair hefur fengið mikinn stuðning í gegnum árin frá ríkinu sem hluti af þjóðaröryggi landsmanna í flugsamgöngum, milljarða króna í Covid-styrki, svo maður mætti ætla að þeir sýndu einhverja samfélagslega ábyrgð. En það er fullur vilji til þess, tel ég, hjá stjórnvöldum og samgönguráðherra að tryggja flug til Ísafjarðar áfram og við verðum að gera það, hvort sem það væri í formi útboðs eða samninga beint við flugfélög. Þessi samgöngumál mega ekki vera í lausu lofti. (Forseti hringir.) Þetta er stórt öryggis- og byggðamál fyrir fólkið í landinu, fyrir fólk á Vestfjörðum og fyrirtæki á Vestfjörðum sem eru í uppbyggingu.