156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

1. mál
[14:20]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fína yfirferð á þessu máli, um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Það er reyndar mjög margt í þessari breytingu sem væri alveg vert að fara yfir. En það eru svona nokkrir hlutir, aðallega einn kannski, einn eða tveir, sem aðeins stinga mig og mig langar að fá betri upplýsingar hjá hv. þingmanni hvernig nefndin sá það fyrir sér. Nú hef ég fengið samtöl úr heilbrigðisgeiranum er varða dagdvöl og heimahjúkrun, þ.e. að færa þann hluta burtu úr heilbrigðisráðuneytinu, m.a. uppbyggingu hjúkrunarheimila. Menn hafa miklar áhyggjur af þeirri tilfærslu, veit ég. Ef hv. þingmaður gæti aðeins slegið á ótta minn hvað það varðar.

Hins vegar er það Heyrnar- og talmeinastöðin sem hv. þingmaður fór yfir hér áðan. Í umsögn Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar segir, með leyfi forseta

„Stærsta vandamál sem blasir við er hvernig sérhæfðu heilbrigðisstarfsfólki, sem lýtur eftirlits Landlæknisembættis, verði gert kleift að starfa hjá félagslegri þjónustustofnun en áfram hafa fullan aðgang að þeim nauðsynlegu kerfum og samskiptaleiðum sem heilsugæsla, sjúkrahús og sérfræðistofnanir heilbrigðiskerfisins (þ.m.t. HTÍ) nýta.“

Ég velti því fyrir mér hvort það sé ekki örugglega tryggt með þessum flutningi að þessar samskiptaleiðir og nýtingin á þessum nauðsynlegu kerfum verði áfram í boði fyrir starfsmenn Heyrnar- og talmeinastöðvar.