156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

1. mál
[14:38]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið þó að kannski hafi ekki verið beint spurning í því. En ég ætla að taka undir með hv. þingmanni varðandi Heyrnar- og talmeinastöð, við þurfum að fylgja þessu mjög vel eftir. Þá ætla ég bara að leyfa mér að segja það, og nú ætla ég að vona að við föllum ekki í gryfjuna stjórn og stjórnarandstaða, að þegar kemur að málefnum fatlaðs fólks hefur þessi málaflokkur því miður oft verið á of gráu svæði. Við höfum líka fært þennan málaflokk yfir til sveitarfélaganna þannig að það eru ákveðnir þættir sem ráðuneytið og hið opinbera, ríkið, sinnir en annað sem sveitarfélögin sinna. Það er bara mikilvægt þegar við horfum til hagsmuna þessara aðila sem eru að njóta þarna þjónustu að það sé algjörlega skýrt undir hvern það heyrir að þau fái þá þjónustu sem þau þurfa á að halda og að hún sé niðurgreidd með eðlilegum hætti. Þannig að ég segi já, ég vona að þetta gangi eftir eins og þarna stendur en ég hvet líka okkar fólk sem situr í velferðarnefnd til að fylgja því mjög vel eftir. Það er nauðsynlegt.

Hv. þingmaður fer hér yfir að svona hafi tíðkast áður, þ.e., ef ég skildi hv. þingmann rétt, að það komu þá væntanlega alla vega tveir gestir en ekki einn eins og í þessu tilfelli og það hafi átt við þegar við brutum upp gamla innanríkisráðuneytið í dómsmálaráðuneyti og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti. Ég ætla bara að segja að það getur vel verið. Störf í nefndum hérna eða störf í þessum þingsal hafa ekki alltaf verið til fyrirmyndar, alls ekki. Stundum hafa mál verið afgreidd allt of hratt og ekki að vandlega yfirveguðu ráði. En eigum við þá ekki bara að breyta því? Eigum við ekki að sjá til þess þegar við vinnum mál hér að við leggjum okkur öll fram og vöndum okkur, hlustum á þau sjónarmið sem fram koma og tökum svo afstöðu? Þannig að ég segi að mér finnst ekki góður bragur á þessu, svo ég ítreki það, sérstaklega vegna þess að þetta er fyrsta málið og þetta er stórt mál þó að, eins og ég segi, ég styðji það heils hugar ef hægt er að spara í Stjórnarráðinu. Þá bara tek ég heils hugar undir það og ég vona innilega að það verði raunin. En það sem ég var að segja hérna áðan, og ég bara ítreka, snýr fyrst og fremst að vinnubrögðunum sjálfum.