156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

1. mál
[14:53]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða þessa ágætu þingsályktunartillögu og ég vil byrja á að fagna henni og taka undir nefndarálitið sem er vel gert að mínu mati. Þessi tillaga lýtur að hagræðingu og sparnaði og það er kannski það sem skiptir öllu máli hér. Við erum hér að ræða um breytta skipan ráðuneyta og fækkun ráðuneyta. Allt sem stuðlar að hagkvæmni í rekstri ríkisins og að því að geta bætt nýtingu fjármuna skiptir náttúrlega mestu máli. Þá myndi ég líka vilja horfa til fleiri kerfa eins og borgarkerfisins. Okkur ber að fara vel með fé skattgreiðenda og þetta er liður í því. En það skiptir líka máli, þegar á að hagræða, að það sé gert þannig að það bitni ekki á beinni þjónustu við fólk. Það skiptir öllu máli að við séum þá ekki að draga úr þjónustu. Með þessari þingsályktunartillögu og fækkun ráðuneyta myndi maður halda að það sé ekki að gerast. Það er ekki beinlínis verið að draga úr beinni þjónustu við fólkið.

Fækkun ráðuneyta um eitt hefur marga kosti. Við það skapast tækifæri til að búa svo um hnúta að skipulag ráðuneyta endurspegli enn betur meginregluna um að sambærileg stjórnarmálefni heyri undir sama ráðuneyti. Með fækkun eru einnig auknar líkur á að betri yfirsýn náist yfir verkefnin og nauðsynlegar tengingar. Boðleiðir styttast og skilvirkni eykst. Stærri ráðuneytin geta betur tekist á við krefjandi verkefni og veitt öflugri þjónustu auk þess að tryggja betri yfirsýn og samþættingu stefnumótunar, eins og segir í þingsályktunartillögu. Með stækkun ráðuneyta er frekar möguleiki á sveigjanleika gagnvart áskorunum í ríkisrekstri og öll skipulagning verður auðveldari. Jafnframt skapast tækifæri til að færa starfsfólk til á milli málaflokka eftir því sem áherslur gefa tilefni til. Margt fleira mætti telja til en með þessari tillögu er meginmarkmiðið, og það sem við ættum að vera að ræða hér umfram allt, að bæta rekstur ríkisins og tryggja að fjármunir séu nýttir á sem skilvirkastan hátt í þágu samfélagsins.

Unnið hefur verið að þessum breytingum frá því í lok síðasta árs og gerð er góð grein fyrir því í tillögunni. Allar breytingar sem hér eru kynntar eru til bóta en mig langar sérstaklega að nefna félags- og húsnæðismálaráðuneytið og þær helstu breytingar sem þar búa undir. Það er ráðuneyti sem skiptir vissulega mjög miklu máli eins og öll önnur en þetta ráðuneyti fær nýtt heiti og verður nú félags- og húsnæðismálaráðuneyti; málaflokkarnir húsnæðis- og mannvirkjamál og skipulagsmál flytjast til þessa ráðuneytis. Er þessi breyting í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í húsnæðismálum sem eiga að auka húsnæðisöryggi almennings og stuðla að kerfisbreytingum til lengri tíma.

Nú segir í þingsályktunartillögunni, með leyfi forseta:

„Öruggt húsnæði er mikilvæg forsenda fyrir velferð íbúa og snerta þessir málaflokkar með beinum hætti alla einstaklinga í íslensku samfélagi. Skipulagsmál eru að hluta til samofin húsnæðis- og mannvirkjamálum og til að framangreind markmið ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum náist er mikilvægt að áætlanir og framkvæmdir í þessum málaflokkum séu samræmdar og að unnið verði að nægilegu framboði byggingarlóða til lengri tíma í samvinnu við sveitarfélögin í landinu.“ — Þetta eru náttúrlega alveg himneskar setningar í mínum huga enda eitthvað sem búið er að ræða lengi vegna skorts á íbúðarhúsnæði.

Áfram segir:

„Stuðla þarf að jafnvægi á húsnæðismarkaði með húsnæðisstuðningi, aukinni skilvirkni í leyfisveitingum framkvæmda, lánveitingum, rannsóknum, upplýsingagjöf, áætlanagerð og eftirliti. Mikilvægt er að tryggja almenningi raunverulegt val um búsetuform þannig að einstaklingar hafi aðgengi að öruggu og vistvænu húsnæði á viðráðanlegu verði.“

Önnur afar mikilvæg breyting, með leyfi forseta, er þessi:

„Auk húsnæðis- og mannvirkjamála og skipulagsmála verður tilfærsla á málaflokkum sem varða öldrunarþjónustu frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Heilbrigðisþjónusta við hruma og veika aldraða, þ.e. þjónusta í hjúkrunarrýmum, sérhæfðri dagdvöl og heimahjúkrun, verður áfram í heilbrigðisráðuneyti en stjórnarmálefni sem snúa að opinni öldrunarþjónustu, þ.m.t. félags- og virkniþjónusta, búsetuúrræði og uppbygging hjúkrunarheimila og þjónustuíbúða fyrir aldraða, verða í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Sú skipting er í samræmi við það viðhorf að öldrun sé ekki sjúkdómur sem kallar á heilbrigðisþjónustu heldur almenna öldrunar- og stuðningsþjónustu.“ — Þetta er hjartans mál fyrir okkur í Flokki fólksins.

Áfram segir:

„Er þessi tilfærsla liður í þjóðarátaki í umönnun eldra fólks sem ríkisstjórnin mun leiða, m.a. með verkefnum um aukna fjárfestingu til að styrkja stoðir heilbrigðis- og öldrunarþjónustu um land allt, fjölgun hjúkrunarrýma og eflingu heimahjúkrunar.“

Það sem skiptir kannski ekki hvað síst máli og er mikið hagsmunamál stórs hóps hér á landi er að jafnframt verður komið á fót hagsmunafulltrúa eldra fólks, sem mun fylgjast náið með högum eldra fólks, hvort sem það dvelur á stofnun eða heldur eigið heimili. Þetta er eiginlega rúsínan í þessum pylsuenda, finnst mér, að þetta skuli vera að verða að veruleika.

Við lifum lengur og það kallar á áherslur sem endurspegla vilja löggjafans til að styðja við heilbrigða öldrun. Þessari þróun fylgja bæði tækifæri og áskoranir og mikilvægt er að stjórnvöld bregðist við með bættri stefnumótun í málefnum aldraðra. Með breytingunum næst betri yfirsýn yfir málaflokka sem varða hagsmuni eldra fólks á einn eða annan hátt sem mun auðvelda stjórnvöldum að endurskoða og bæta stefnumótun á grunni víðtæks samráðs við hagaðila og heildstæðra og ítarlegra greininga innan stjórnsýslunnar.

Það sem er kannski ekki síst frábært og er að gerast hér, með leyfi forseta, er þetta:

„Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verður áfram hjá félags- og húsnæðismálaráðuneyti en aðrir mannréttindasamningar flytjast frá ráðuneytinu til dómsmálaráðuneytis.“

Og áfram segir:

„Telja verður að augljós samlegðaráhrif felist í því að skilja samninginn eftir hjá ráðuneyti félagsmála sem fer með málefni fatlaðs fólks. Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar hyggst hún lögfesta samninginn. Það er liður í því að efla, verja og tryggja full og jöfn mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við aðra en samningurinn felur í sér bann við hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og að fötluðu fólki sé tryggð jöfn og árangursrík réttarvernd gegn mismunun á öllum sviðum.“

Það er í raun ótrúlega stórt skref sem verið er að stíga hér og mætti halda því til haga víðar og oftar í okkar samfélagi. Sparnaður og hagræðing er hagur okkar allra. Stjórnvöld eiga ávallt að fara vel með almannafé og skattfé og við eigum að vanda okkur og fara vel með hverja einustu krónu, velta við hverjum steini. Með því að skoða ekki bara krónuna heldur líka í samhengi við það að hagræða og ná betri yfirsýn erum við á sama tíma að gera alla vinnu skilvirkari. Það er kannski þar sem einhverju hefur verið ábótavant, bæði hér á hinu háa Alþingi og einnig hjá öðrum stjórnvaldskerfum eins og sveitarstjórnum, þ.e. að huga að því að gera vinnu skilvirkari. Kerfin eru oft sein og það eru langar boðleiðir, það eru mörg stig og það er það sem oft hefur gerst og árin líða. Jafnvel eins og núna, það er verið að taka upp mörg mál sem hafa verið að velkjast um lengi hér á Alþingi, mörg misseri. Sum frumvörp hafa jafnvel verið lögð fram sex til tíu sinnum og eru að koma enn og aftur hingað; það má rétt ímynda sér tímann og peningana sem þetta kostar svo að ekki sé minnst á vinnuaflið. En hvort sem það eru 350 milljónir sem sparast núna eða 325 milljónir; það er kannski ekki aðalatriðið. Við erum samt sem áður að ræða hér um gríðarlega háa upphæð og vonandi verður kostnaðarmatið nokkurn veginn það sama og áætlað er. En það er ekki eitthvert þrætuepli, myndi ég halda, hér í þessum sal. Vonandi verður þetta bara til góðs og það væri flott að sjá fleiri þingsályktunartillögur af sama meiði þar sem komið er með tillögur til sparnaðar og hagræðingar. (Forseti hringir.) Kannski á það líka eftir að gerast í auknum mæli þegar við erum að fá til okkar hugmyndir um sparnað og hagræðingu frá almenningi.