breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Forseti. Ágæta borgarstjórn, ætlaði ég að segja, ég þarf aðeins að stilla mig inn á að vera hérna megin við götuna. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans andsvar og spurningin var: Af hverju fækkum við ekki um fleiri ráðuneyti? Það er dálítið erfitt fyrir mig að svara. Ég er ekki alveg enn þá orðin forsætisráðherra, segi ég í gríni, en það gæti átt eftir að koma síðar, hver veit. Kjörtímabilið er núna rétt að byrja og leikurinn er að hefjast. Ef það verður sýnt fram á að það sé til mikilla bóta og hagræðingar og sparnaðar án þess að skerða þjónustu að fækka ráðuneytum frekar þá er ekkert óeðlilegt að það kæmi síðar. Ég minnist þess bara að þegar ég heyrði að það ætti að fjölga ráðuneytum hérna um árið þá svona hugsaði maður: Fjölga ráðuneytum, er það nú nauðsynlegt? Væri ekki nær að skoða frekar að sameina verkefni og vinnu og gera eitthvað annað við peningana? Ég held að með því að fara í svona stjórnkerfisbreytingar þá erum við í rauninni að tala um að þjappa saman verkefnum og með því að hafa þau undir einu þaki, ef má orða það svo, þá auðvitað verður vinnan öll skilvirkari og það er það sem almenningur hagnast á, hann fær meira út úr því sem er verið að gera þarna. Erindum verður mögulega fyrr svarað og alls konar leiðir sem hafa verið flóknar og margslungnar verða einfaldari þannig að ég held að með þessu séum við öll að græða. Þarna myndast rými til að nota fjármagnið, 300–350 milljónir, í eitthvað annað sem ekki hefur jafnvel verið hægt að gera vegna fjárskorts eða vegna þess að staða peningamála hefur ekki verið nógu góð.