ákvarðanir nr. 317/2023 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn o.fl.
Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd þrjár ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar frá síðasta og líka þarsíðasta ári. Ég ætla að fara yfir þessar ákvarðanir í stuttu máli.
Fyrsta ákvörðunin, nr. 317/2023, fellir inn í EES-samninginn, m.a. reglugerð ESB 2019/1020 um markaðseftirlit og samræmi vara við kröfur. Markmiðið með þessu er að tryggja að vörur á markaði uppfylli nauðsynlegar kröfur um heilbrigði og líka almannaöryggi. Þetta snýst m.a. um ábyrgð og skyldur rekstraraðila og birgja varðandi hönnun, merkingar og síðan eftirlit með vörum. Reglurnar kalla á lagabreytingar hér á landi og er ráðgert að atvinnuvegaráðherra leggi fram á næsta löggjafarþingi frumvarp um breytingar á lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1994, sem og á sérlögum um tiltekin eftirlitsstjórnvöld. Þá gefst þinginu líka betra tækifæri til þess að fara efnislega inn í þessi mál.
Önnur ákvörðunin, nr. 145/2024, fellir inn í EES-samninginn hinn svokallaða verðbréfunarpakka ESB. Markmið hans er að koma á styrkri lagaumgjörð í kringum verðbréfunarviðskipti. Takmarkið er að draga úr áhættunni sem felst í verðbréfun og að tryggja aðgreiningu einfaldra, gagnsærra og staðlaðra verðbréfunarafurða frá flóknum, ógegnsæjum og áhættusamari afurðum. Til innleiðingar hefur fjármála- og efnahagsráðherra lagt fram frumvarp til laga um verðbréfun.
Þriðja og síðasta ákvörðunin sem þessi þingsályktunartillaga fjallar um, ákvörðun nr. 170/2024, fellir inn í EES-samninginn ESB-reglugerð um greiðslur yfir landamæri í sambandinu. Með reglugerðinni eru sameinuð ákvæði tiltekinna ESB-gerða sem varða sama efni. Mikilvægustu áhrifin af innleiðingu hennar er rýmkun meginreglunnar um jöfn gjöld á greiðslur í evrum yfir landamæri. Til innleiðingar á reglugerðinni hefur fjármála- og efnahagsráðherra lagt fram frumvarp til nýrra laga um greiðslur yfir landamæri í evrum sem felli brott samnefnd lög nr. 78/2014.
Þá var haft samráð við utanríkismálanefnd vegna upptöku umræddra gerða í samninginn, sem gerði ekki athugasemdir við upptöku þeirra á þann hátt sem þingsályktunartillagan tilgreinir. Jafnframt fengu nokkrar af þessum gerðum umfjöllun í efnahags- og viðskiptanefnd, sem gerði heldur ekki athugasemdir við upptöku þeirra í samninginn. Nánari upplýsingar, m.a. um áhrif innleiðingar gerðanna, má finna í meðfylgjandi tillögu til þingsályktunar.
Ég legg því til, virðulegi forseti, að þegar umræðu þessari lýkur verði tillögu þessari vísað til utanríkismálanefndar.