sjúkratryggingar.
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008. Frumvarpið er samið að höfðu samráði við m.a. Sjúkratryggingar Íslands, embættis landlæknis og Landspítala. Þetta mikilvæga frumvarp var lagt fram á síðustu tveimur löggjafarþingum án þess að ná fram að ganga og er nú endurflutt með smávægilegum breytingum. Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar breytingar með það fyrir augum að veita Sjúkratryggingum Íslands skýrari heimildir til að geta sinnt lögbundnum skyldum sínum sem umsjónaraðila sjúkratrygginga landsmanna og að kostnaðargreina heilbrigðisþjónustuna. Enn fremur að tryggja skýrleika laganna og gegnsæi við málsmeðferð stofnunarinnar sem og meðferð og vinnslu gagna.
Lagðar eru til breytingar á tilteknum ákvæðum sem varða réttindi sjúkratryggðra. Ber þar fyrst að nefna að lagt er til að biðtími eftir sjúkratryggingu við flutning til landsins verði styttur verulega. Biðtími eftir sjúkratryggingu og þar með þeim réttindum sem felast í greiðsluþátttöku sjúkratrygginga er í dag sex mánuðir eftir flutning til landsins nema einstaklingur geti t.d. sýnt fram á að hafa haft sjúkratryggingu í öðru EES-ríki. Þessi biðtími er langur og lengri en gengur og gerist á Norðurlöndunum og felur í sér óhagræði fyrir þá einstaklinga sem flytjast hingað til lands og eiga ekki rétt á sjúkratryggingu strax. Er því lagt til að biðtíminn verði styttur niður í þrjá mánuði, sem yrði töluverð réttarbót fyrir þá einstaklinga sem um ræðir sem myndu þannig öðlast rétt til greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga mun fyrr en nú gildir.
Þá er lagt til að greiðsluþátttaka vegna kostnaðar sem einstaklingar verða fyrir vegna veikinda og slysa erlendis verði takmarkaður en einkum er um að ræða kostnað vegna veikinda og slysa sjúkratryggðra á ferðalögum utan Evrópska efnahagssvæðisins. Þessi almenni réttur til greiðslu kostnaðar vegna veikinda og slysa þekkist ekki hjá hinum Norðurlandaþjóðunum enda einstaklingar flestir tryggðir við kostnaði vegna veikinda og slysa í gegnum einkatryggingar, svo sem kreditkortatryggingar. Í frumvarpinu er lagt til að réttur til greiðslu kostnaðar vegna veikinda og slysa erlendis verði takmarkaður við afmarkaðan hóp sjúkratryggðra, svo sem námsmanna, veikist þeir eða slasist í námsríki.
Í frumvarpinu er einnig lagt til að Sjúkratryggingum Íslands verði veittar skýrari heimildir til að taka ákvörðun um hvort einstaklingur sé sjúkratryggður hér á landi. Lög um sjúkratryggingar miða nú við að einstaklingur sé sjúkratryggður á grundvelli lögheimilisskráningar hér á landi. Hins vegar eru dæmi um að einstaklingur haldi lögheimilisskráningu sinni hér eftir flutning úr landi og njóti þannig áfram greiðsluþátttöku ríkisins vegna heilbrigðisþjónustu og annarra réttinda án þess að greiða í sameiginlega sjóði á Íslandi. Í frumvarpinu er því lagt til að Sjúkratryggingum Íslands verði heimilt að leggja mat á raunverulega búsetu sjúkratryggðs, svo sem á grundvelli upplýsinga frá skattyfirvöldum. Sýni gögn fram á raunverulega búsetu hér á landi heldur sjúkratryggður sínum réttindum en ella er rétturinn felldur niður.
Meðal annarra breytinga sem lagðar eru til í frumvarpinu er að lögfesta sérstaka skyldu Sjúkratrygginga Íslands til að byggja ákvarðanir sínar á gagnreyndri meðferð og faglegu og hagrænu mati. Þessum viðmiðum hefur að sjálfsögðu verið fylgt í starfsemi stofnunarinnar en æskilegt er að lögin mæli með skýrum hætti um að þessi atriði gildi við alla ákvarðanatöku hjá Sjúkratryggingum Íslands.
Einnig er lögð til breyting á notkun hugtaka í lögunum og þá helst að hugtakið réttindagreiðslur verði notað í auknum mæli í stað hugtaksins bætur. Orðið réttindagreiðslur hefur verið notað um árabil í starfsemi Sjúkratrygginga Íslands og þykir lýsa betur þeim réttindum sem sjúkratryggðir eiga t.d. varðandi endurgreiðslu á útlögðum kostnaði.
Frumvarpinu er jafnframt ætlað að breyta ýmsum öðrum ákvæðum laganna og festa í lög atriði sem lögin hafa ekki mælt fyrir um áður. Lagt er til að mæla sérstaklega fyrir um rétt til þátttöku Sjúkratrygginga í kostnaði vegna læknismeðferðar erlendis vegna of langs biðtíma hér á landi, en sá réttur hefur hingað til verið byggður á Evrópulöggjöf.
Þá er lagt til að festa í lög rétt Sjúkratrygginga til að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu á grundvelli svonefndra fjármögnunarlíkana sem notuð hafa verið til að reikna út greiðslur til heilsugæslna. Einnig að Sjúkratryggingum verði heimilt að fresta töku ákvörðunar vegna beiðna um upplýsingar um yfirstandandi samningaviðræður um kaup á heilbrigðisþjónustu telji stofnunin að afhending upplýsinganna geti haft neikvæð áhrif á framgang viðræðnanna.
Í frumvarpinu eru ákvæði um miðlægan heilbrigðisþjónustugrunn og miðlægan lyfjagreiðslugrunn einnig tekin til endurskoðunar og tilteknar breytingar lagðar til svo Sjúkratryggingar hafi fullnægjandi upplýsingar til að reikna út greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga. Að því er varðar lyfjagreiðslugrunn varða breytingar nánari útfærslu á þeim upplýsingum sem skal skrá í grunninn, svo sem lyfjakostnað, lyfjanotkun og fleira. Tillögur um breytingar á ákvæðum um miðlægan heilbrigðisþjónustugrunn eru m.a. til komnar vegna innleiðingar á þjónustu tengdri fjármögnun sjúkrahúsa en lagt er til að skráðar verði upplýsingar um meðferðir og legutímabil sjúklinga, svo dæmi séu tekin.
Breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu varða einnig vinnslu persónuupplýsinga hjá Sjúkratryggingum Íslands og miðlun upplýsinga um biðlista. Er lagt til að Sjúkratryggingum verði heimilt að kalla eftir nauðsynlegum upplýsingum um einstaklinga á biðlista, m.a. frá embætti landlæknis. Vegna framkvæmdar samninga um þjónustutengda fjármögnun er lagt til að Sjúkratryggingum verði heimilt að kalla eftir upplýsingum úr heilbrigðisskrám embættisins um veitta meðferð og öðrum upplýsingum til að stofnunin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu í tengslum við framkvæmd og greiðslur.
Loks er lagt til að skýra betur heimildir Sjúkratrygginga Íslands um vinnslu persónuupplýsinga í 50. gr. laganna. Hlutverk Sjúkratrygginga er afar umfangsmikið og felst m.a. í framkvæmd Sjúkratrygginga að semja um kaup á heilbrigðisþjónustu, endurgjald fyrir þá þjónustu sem og eftirlit með gæðum og árangri. Mikilvægt er að tryggja sem best nýtingu þeirra fjármuna sem í málaflokkinn fara og stuðlar frumvarpið að því.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginatriðum frumvarpsins. Leyfi ég mér að leggja til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.