verðbréfun.
Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til nýrra laga um verðbréfun. Í því er lagt til að lögfest verði reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, sem ég vísa hér eftir til sem STS-reglugerðarinnar, og tengdar Evrópugerðir.
Verðbréfun er viðskiptasamningur eða kerfisfyrirkomulag þar sem greiðslufallsáhætta tengd kröfu eða kröfusafni, t.d. lánasafni, er lagskipt í áhættulög og umbreytt í framseljanleg verðbréf sem seld eru til fjárfesta. Þannig safnar lánveitandi saman lánasafni sínu, endurflokkar það og skipuleggur eftir mismunandi áhættuflokkum fyrir ólíka fjárfesta. Hagnaður fjárfesta verður til af sjóðstreymi undirliggjandi lána, eða er háður afkomunni af undirliggjandi kröfu eða kröfusafni. Forgangsröðun áhættulaga ákvarðar dreifingu taps á líftíma verðbréfunar ef til þess kemur.
Helstu aðilar að hefðbundinni verðbréfun eru upphaflegur lánveitandi, upphafsaðili, sem er sá sem stendur fyrir verðbréfuninni, og sérstakur verðbréfunaraðili, sem er lögaðili sem stofnsettur er í þeim tiltekna tilgangi að framkvæma verðbréfun. Hér á landi má reikna með að helstu þátttakendur í viðskiptum með verðbréfaðar stöður verði eftirlitsskyldir aðilar á fjármálamarkaði, einkum fjármálafyrirtæki, vátryggingafélög, rekstrarfélög verðbréfasjóða, rekstraraðilar sérhæfðra sjóða og, eftir atvikum, lífeyrissjóðir.
Forseti. Í STS-reglugerðinni eru settar fram almennar kröfur sem gerðar eru til allra tegunda verðbréfunar, auk þess sem settar eru fram sértækar kröfur til einfaldrar, gagnsærrar og staðlaðrar verðbréfunar, öðru nafni STS-verðbréfun.
Af almennum kröfum til allra tegunda verðbréfunar má nefna að sala til almennra fjárfesta er háð takmörkunum, gerðar eru kröfur um áreiðanleikakönnun stofnanafjárfesta, krafa er gerð um að þeir sem standa að verðbréfun haldi eftir hluta áhættu, gagnsæiskröfur eru skilgreindar og skulu upplýsingar gerðar tiltækar í verðbréfunarskrá, bann er almennt lagt við endurverðbréfun og kveðið á um beitingu sömu viðmiða um lánveitingu á áhættuskuldbindingar sem til stendur að verðbréfa og beitt er á óverðbréfaðar skuldbindingar.
Sértækar kröfur eru ítarlega skilgreindar til STS-verðbréfunar í reglugerðinni og talað um STS-viðmið eða -kröfur. Þeim er ætlað að tryggja einfaldleika, stöðlun og gagnsæi viðskiptaskjala og framkvæmdar. Fela má þriðja aðila, með viðeigandi starfsleyfi, að sannprófa að STS-viðmið séu uppfyllt, en endanleg ábyrgð á tilkynningu og meðhöndlun verðbréfunar sem STS er ávallt hlutaðeigandi aðila að verðbréfun. Þeim sem standa að verðbréfun í aðildarríkjum ESB og EFTA-ríkjunum innan EES ber sameiginlega að tilkynna Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnuninni, ESMA, um að STS-verðbréfun uppfylli kröfur reglugerðarinnar, þ.e. svonefnd STS-tilkynning. ESMA skal birta lista yfir allar verðbréfanir sem STS-tilkynningar berast um, af öllu Evrópska efnahagssvæðinu, á vef sínum.
Brýnt er að fjárfestar meti á tilhlýðilegan hátt áhættuna sem stafar af öllum tegundum verðbréfunar. Megintilgangur STS-tilkynninga og almennrar skyldu aðila að verðbréfun til að gera upplýsingar um verðbréfanir tiltækar gegnum verðbréfunarskrá er að veita fjárfestum eina og eftirlitsskylda uppsprettu gagna sem nauðsynleg eru fyrir þá til að framkvæma áreiðanleikakönnun. Verðbréfunarskrá er nýr skráningarskyldur aðili á fjármálamarkaði. Í tilviki ríkja Evrópusambandsins fer ESMA með skráningu og eftirlit með slíkri starfsemi, en í tilviki verðbréfunarskrár á Íslandi eða í öðru EFTA-ríki innan EES fer Eftirlitsstofnun EFTA með skráningu og eftirlit, í samræmi við tveggja stoða kerfið.
Forseti. Íslandi ber skv. a-lið 7. gr. EES-samningsins, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, að taka gerðir sem samsvara reglugerðum Evrópusambandsins og eru teknar upp í EES-samninginn sem slíkar upp í landsrétt. Með frumvarpi þessu er því lagt til að STS-reglugerðin og aðrar reglugerðir sem tilheyra verðbréfunarpakkanum verði teknar upp í íslenskan rétt í heild sinni með tilvísunaraðferð.
Með frumvarpinu er ekki gengið lengra en lágmarkskröfur STS-reglugerðarinnar kveða á um, að því frátöldu að lagt er til að ef lífeyrissjóðir hyggjast fjárfesta í verðbréfuðum stöðum skuli þeir framkvæma áreiðanleikakönnun samkvæmt reglugerðarinni, en lífeyrissjóðir falla ekki undir gildissvið reglugerðarinnar. Umrædd áreiðanleikakönnun felur einkum í sér setningu verklagsreglna sem eru hæfilegar miðað við áhættusnið tiltekinnar verðbréfaðrar stöðu, trygga upplýsingagjöf til stjórnar svo henni sé kunnugt um verulega áhættu og fyrirkomulag áhættustýringar vegna slíkra fjárfestinga og, ef við á, framkvæmd álagsprófa. Fjárfesting í verðbréfuðum stöðum af hálfu stofnanafjárfesta getur haft áhrif á kröfur til þeirra um eigið fé eða gjaldþol.
Áformað er að fela Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands eftirlit með framkvæmd STS-reglugerðarinnar hér á landi og tilheyrandi viðurlagaheimildir, enda fer það almennt með eftirlit með fjármálastarfsemi. Gert er ráð fyrir heimildum til að leggja á allt að 630 millj. kr. sektir vegna brota gegn ákvæðum STS-reglugerðarinnar, í samræmi við tilmæli hennar. Fjármálaeftirlitinu verði jafnframt heimilt að kveða á um bann við stjórnunarstörfum, tímabundið eða varanlega, vegna brota. Þá er gert ráð fyrir að Fjármálaeftirlitið geti kveðið á um tímabundið bann við STS-tilkynningum af hálfu aðila að verðbréfun, ef brotið er gegn STS-kröfum. Markmið frumvarpsins er að koma á styrkri og heildstæðri lagaumgjörð í kringum verðbréfun og uppfylla þjóðréttarlegar skuldbindingar ríkisins. Aðgreining einfaldra, gagnsærra og staðlaðra verðbréfunarafurða frá flóknum, ógagnsæjum og áhættusamari afurðum verður tryggð og mögulegri áhættu mætt með viðeigandi kröfum og eftirliti. Stuðlað er að vernd fjárfesta með viðeigandi og gagnsærri áhættudreifingu og upplýsingakröfum.
Forseti. Óvíst er hvort verðbréfun verði umfangsmikil á Íslandi í fyrirsjáanlegri framtíð. Með traustu skipulagi og lagaumgjörð verður hún þó fýsilegri kostur en ella, sem tæki fyrir fjármagns-, lausafjár- og áhættustýringu fyrirtækja á fjármálamarkaði. STS-reglugerðin gerir auknar kröfur um upplýsingagjöf, stöðlun og áhættuþátttöku þeirra sem koma að verðbréfun og getur því haft jákvæð áhrif á fjármálastöðugleika. Fyrirhuguð lögfesting mun tryggja stjórnvöldum heildstæðari yfirsýn yfir aðkomu innlendra aðila að slíkum viðskiptum á Evrópska efnahagssvæðinu en nú er möguleg. Talið er að áhrif frumvarpsins rúmist innan núverandi rekstraráætlana Fjármálaeftirlitsins og ekki er reiknað með áhrifum á ríkissjóð. Ekki er þó unnt að útiloka að þörf kunni að reynast á hækkun eftirlitsgjaldsins sem stendur undir rekstri Fjármálaeftirlitsins.
Upphaflegur verðbréfunarpakki var samþykktur 2017 og kom til framkvæmda í aðildarríkjum Evrópusambandsins í janúar 2019. Hann var tekinn upp í EES-samninginn í júní 2024. Lagt er til að fyrirhuguð lög taki gildi 1. júní 2025. Áform um innleiðingu hafa legið fyrir í nokkrum tíma og haghafar hafa því haft ráðrúm til aðlögunar og undirbúnings vegna innleiðingarinnar. Með lögunum verða ekki lagðar nýjar skyldur á aðila á fjármálamarkaði nema þeir hyggi á verðbréfun á grundvelli reglugerðarinnar og þau munu leiða til aukinnar verndar fjárfesta. Seðlabanki Íslands er í stakk búinn til að takast á við eftirlit með framkvæmd STSR.
Forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og 2. umræðu.