156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

123. mál
[17:07]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra framsöguna. Ég ætla að koma mér beint að efninu í ljósi þess að ræðutíminn er stuttur. Í fyrsta lagi kemur hæstv. ráðherra inn á í greinargerð að sýnin sé sú að heildartekjur af akstri og ökutækjum verði 1,7% af vergri landsframleiðslu árið 2027. Með þessum hækkunum sem hér eru lagðar til, m.a. 25% hækkun kolefnisgjalds ofan á 56–60% hækkun í fyrra á síðasta þingi og miðað við að koma tekjum úr 1,5% af vergri landsframleiðslu upp í 1,7%, þá hallar í 15% viðbótarhækkun sem stjórnvöld sjá fyrir sér á akstur og ökutæki á árinu 2026 og yfir til ársins 2027. Hvar sér hæstv. ráðherra fyrir sér að þessi viðbótarskattlagning komi fram? Verður það í enn hækkuðum kolefnisgjöldum eða sér hæstv. ráðherra fyrir sér að það verði annars staðar innan kerfisins?