156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

123. mál
[17:22]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni aðra mjög góða spurningu. Eins og fram kom í framsöguræðu minni myndu einungis þær dráttarvélar sem eru skráningarskyldar — það er eitthvað um að slíkar vélar séu notaðar í vegakerfinu en þó tel ég að það sé fátítt meðal bænda — falla undir þetta kerfi. Þær sem eru ekki skráningarskyldar eins og fyrirkomulagið er í dag myndu ekki falla undir þetta.