156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

123. mál
[18:14]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég hygg að með þessu frumvarpi sé nú komið fram eitt stærsta frumvarpið sem lagt verður fyrir þetta þing, mögulega bara á þessu kjörtímabili, svo viðamikið tel ég það vera bæði að efni og formi til og áhugavert sem slíkt. Ég vænti þess að það fái hér vandaða þinglega meðferð, bæði í þingsal og í hv. efnahags- og viðskiptanefnd, ég geri ráð fyrir að þessu verði vísað þangað.

Í grófum dráttum sýnist mér þetta frumvarp fela tvennt í sér. Það liggur fyrir að þetta er heilmikil kerfisbreyting í ljósi þeirrar þróunar sem er að verða á bílaflota landsmanna og hér er þá verið að reyna að grípa til varna fyrir hagsmuni ríkissjóðs sem hefur auðvitað reitt sig á tekjur frá bíleigendum hingað til. Í sjálfu sér fellst ég alveg á það sjónarmið að það þurfi að huga að þessari kerfisbreytingu í ljósi þessarar þróunar. Ég hef í sjálfu sér ekki neitt við það að athuga. Hins vegar er í þessu frumvarpi líka, það ber ekki bara keim heldur virðist það vera yfirlýst stefna með þessu frumvarpi að beita fyrir sig þessu tekjuöflunarkerfi, sköttum, í þágu einhvers allt annars markmiðs og allt annars máls sem eru loftslagsmálin. Því er beinlínis lýst hér í greinargerð að markmið stjórnvalda sé að hraða orkuskiptunum. Þannig að annars vegar er þetta mál kerfisbreyting í þágu tekjuöflunar ríkissjóðs og hins vegar felst í þessu frumvarpi heilmikil neyslustýring og að mínu mati þar með misráðin notkun á sköttum í allt öðrum tilgangi en í tekjuöflunartilgangi. Það er það sem ég hef helst við þetta að athuga.

Ég tek eftir því að við mat á áhrifum telur ráðherra að það sé skattalega hagkvæmt í þessum tilgangi að neyslustýra og það er kveðið á um að það sé skattalega hagkvæmt að velja hreinorkubifreiðar til að styðja þessi markmið stjórnvalda í loftslagsmálum. Út á þetta gengur svolítið frumvarpið líka. Ég vil vekja athygli hæstv. fjármálaráðherra, sem er nú ókjörinn fulltrúi hér í salnum og sérstaklega skipaður með vísan til faglegrar þekkingar á sviði hagfræði, á skýrslu kollega hans frá Hagfræðistofnun sem út kom 2022 þar sem sérstaklega var einmitt fjallað um áhrif ýmissa aðgerða stjórnvalda í loftslagsmálum. Þar fékk aðgerðin sem miðaði að því að flýta orkuskiptum og niðurgreiða kaup á rafmagnsbílum í þeim tilgangi að flýta orkuskiptum algera falleinkunn. Í þeirri skýrslu er bent á að slíkar aðgerðir séu einar verstu aðgerðir sem hægt er að grípa til í loftslagsmálum þannig að ég hefði áhuga á því að hæstv. fjármálaráðherra rifjaði upp þessa skýrslu og svona velti því fyrir sér hvort ekki mætti draga einhvern lærdóm af henni og þá í þágu þessa frumvarps, hvort ekki mætti bæta það að einhverju leyti.

En að efnisatriðum þessa frumvarps. Það er hins vegar svo umfangsmikið að ég hef bara tök á að fara yfir nokkur atriði sem mér finnst blasa við að varpa fram ef það má verða hv. nefndarmönnum í hv. efnahags- og viðskiptanefnd einhver hvatning til að fjalla aðeins nánar um það á þeim vettvangi. Þá vil ég nefna í fyrsta lagi, af því að það kom fram hér í andsvari við hæstv. fjármálaráðherra þessi munur, þann 150-falda mun sem er á niðurbroti og sliti vega. Þetta kemur fram í töflu hérna á mynd 1, sem sagt þessi munur á bifreið sem er annars vegar 1 tonn að þyngd og hins vegar 3,5 tonn að þyngd, 150-faldur munur á sliti. Á það var bent af hálfu hæstv. fjármálaráðherra að það væri auðvitað þarna einhver annar kostnaður sem snýr að veganotkun en slitin og þess vegna væri ekki rétt að hækka gjöldin í þeim veldisvexti sem þessi slit eru en mér finnst einhvern veginn blasa við að jafnvel þótt við gæfum okkur að fastur kostnaður sé svona 50% af öllum bifreiðum þá ætti a.m.k. 2 tonna bíll að borga fjórum sinnum meira en 1 tonns bíll. Í þessu sambandi finnst mér vert að velta því fyrir sér hvort það sé heiðarlegt að segja að þessi kerfisbreyting sé vegna slita á vegakerfinu, eins og gert er, en gera þá ekki þennan greinarmun á litlum sparneytnum fjölskyldubíl og þungum bíl. Þetta finnst mér vera vísbending um það að hér sé verið að hygla rafbílum sem geta verið litlir, jafn litlir og litlir bensínbílar en mörgum tonnum þyngri heldur en bensínbílar. Mér finnst bara heiðarlegt að menn setji það þá hérna fram vegna þess að þessi tafla er auðvitað alveg óskiljanleg sem og ummælin í greinargerðinni um að það sé óverulegur munur á milli 2 tonna fólksbifreiðar og 3 tonna fólksbifreiðar þegar það er þessi munur á milli 1 tonns bíls og 2 tonna.

Ég geri líka athugasemdir, eins og aðrir sem hafa komið hingað upp, við 25% hækkun kolefnisgjalds ofan á þá 60% hækkun sem var gerð hér degi fyrir kosningar í nóvember sem sturtaði heilum 6 milljörðum kr. í skattahækkun yfir fjölskyldur í landinu og fyrirtæki. Ég geri líka athugasemdir við það, eins og hefur verið nefnt hér, að miða þetta kolefnisgjald við verga landsframleiðslu og að það sé eitthvert sérstakt metnaðarmál að kolefnisgjaldið sé á hverjum tíma 1,7% af vergri landsframleiðslu. Skiptir þróun vergrar landsframleiðslu bara engu máli í þessu sambandi? Eiga skattgreiðendur hér og þingmenn, sem hefur verið bent á, að hlaupa á eftir breytingum á þessu sviði eins og þær verða?

Þessi tenging við verga landsframleiðslu er þó hjóm eitt í samanburði við þá tengingu sem er gerð í frumvarpinu á álagningu kolefnisgjalds við þróun á verði svokallaðra losunarheimilda Evrópusambandsins, svokallaðra ETS-eininga, á uppdiktuðum markaði hjá Evrópusambandinu á þessum heimildum. Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra hvort hann hafi einhverja hugmynd um það hvernig kaupin gerast á eyrinni á þeim markaði. Eiga þingmenn líka að eiga von á því að fá hingað inn í sal frumvörp sem hækka eða lækka kolefnisgjaldið eftir þróun á losunarheimildum á þessum gervimarkaði hjá Evrópusambandinu? Ég geri athugasemdir við þetta og hvet nefndina til að skoða þetta sérstaklega.

Ég tek undir það með hæstv. fjármálaráðherra að áhrifin eru trúlega meiri á íbúa höfuðborgarsvæðisins og það er ekki bara vegna þess að hér séu fleiri rafmagnsbílar. Ég held að það sé óhætt að fullyrða það — ég get ekki fullyrt það en tel samt óhætt að fullyrða það og það væri fróðlegt að sjá á því einhverja rannsóknir — að íbúar á höfuðborgarsvæðinu keyri miklum mun meira heldur en íbúar úti á landi. Það má nú ekki síst þakka stjórnvöldum hérna á höfuðborgarsvæðinu, einkum í Reykjavík, sem hafa þrengt mjög um og gert ökuleiðir tafsamar þannig að eyðslan og aksturinn hefur verið meiri hér og borgin er enn þá að stækka. Ég vil bara halda því til haga að þessi kerfisbreyting er mikið hagsmunamál fyrir höfuðborgarbúa, Reykvíkinga og nærsveitunga og mjög mikilvægt að það sé einmitt vel upplýst um það hvernig þetta muni leggjast á mannskapinn allan.

Ég vil líka nefna það í þessu loftslagsbixi sem ég hef mikinn áhuga á — og menn hafa reynt að tengja nánast annað hvert mál sem kemur hingað inn í þingsal við einhverjar aðgerðir í loftslagsmálum og það er ekki til sú skattahækkun undanfarin ár sem hefur verið gerð sem ekki er réttlætt með vísun í einhverjar alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum — að ef það er þannig, eins og er fullyrt hér í þessu frumvarpi, að það sé markmið að tækla losun á koltvísýringi, að koltvísýringurinn sé svona mikilvægt skotmark, þá spyr ég: Af hverju eru bifreiðar sem losa mest af koltvísýringi í framleiðslu ekki skattlagðar miklum mun meira en hinar bifreiðarnar? En þannig er það ekki í dag þrátt fyrir að bílaframleiðandinn Volvo hafi fullyrt það og upplýst um að það falli til 70% meiri losun í framleiðslu á rafmagnsbílum heldur en á bensínbílum, 70% meira. Mér finnst rétt að menn velti þessu fyrir sér.

Svo vil ég líka nefna að það er tekið fram í frumvarpinu að hækkun á kolefnisgjaldinu — mér er tíðrætt um kolefnisgjaldið af því að þótt þetta frumvarp kallist kílómetragjald hérna á göngum Alþingis þá felst mesta skattahækkunin, mestu áhrifin á heimilin og fyrirtækin í landinu, í breytingunni sem er neðanmáls í þessu frumvarpi sem er 25% hækkun á kolefnisgjaldi ofan á 60% hækkunina sem var fyrir nokkrum dögum. Því er lofað í þessu frumvarpi að kolefnisgjaldið hækki meira eftir því hvernig einhverjir markaðir sveiflist úti í löndum og vergri landsframleiðslu á Íslandi. Mér er umhugað um að menn átti sig á því að það er kolefnisgjaldið sem hér skiptir máli og kolefnisgjaldið hefur áhrif á fleiri en bifreiðaeigendur eða farþega í bílum. Það hefur áhrif á landbúnaðinn. Það hefur áhrif á sjávarútveginn og það er ekki gerð nein tilraun til að meta þessi áhrif til hlítar á þessar atvinnugreinar heldur er þvert á móti viðurkennt að það eigi eftir að skoða hver þau áhrif eru. Það er auðvitað ekki hægt að samþykkja svona kerfisbreytingu fyrr en þessi áhrif liggja fullkomlega fyrir.

Ég vil síðan að lokum nefna að það er auðvitað fjallað hér um áhrif á mismunandi hópa og ég hef nú nefnt á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu. En það er líka rétt að halda því til haga að tekjulágir verða harðar fyrir hækkun á gjöldum eins og kolefnisgjöldum og reyndar þessari kerfisbreytingu líka. Það er viðurkennt í þessu frumvarpi að tekjulágir eiga síður rafmagnsbíla sem hafa verið dýrari bílar hingað til, það vonandi breytist í tímanna rás. En í frumvarpinu er viðurkennt að þeir eiga eyðslufrekari bíla og muni verða fyrir þessari skattlagningu frekar. Ég nefni þetta líka sérstaklega vegna þess að það fer tvennum sögum af því í frumvarpinu hvort þetta frumvarp hafi einhver áhrif yfirhöfuð. Í einu orðinu er fullyrt að þetta sé bara kerfisbreyting sem núllist út með einhverjum hætti en í öðru orðinu er fullyrt að áhrifin verði meiri á tekjuhærri hópa. Það er ekki rétt að mínu mati en í öllu falli er hér viðurkennt að það verða áhrif. Fólk verður fyrir áhrifum af þessu frumvarpi svo menn skulu bara viðurkenna það.

Að lokum vil ég nefna, og hefði viljað spyrja hæstv. fjármálaráðherra um það, að það er ágætistafla á bls. 30, sem kallast mynd 40 í þessu frumvarpi, sem mér finnst ekki sett fram með sanngjörnum hætti. Þarna er verið að sýna eins og það sé einhver einföldun í gangi þegar hið rétta er að þau gjöld sem hafa verið lögð á hingað til og merkt eru þarna blá eða fjólublá hafa öll verið innheimt saman hingað til. Ég hefði áhuga á að vita og beini því til nefndarinnar að kanna hvort það væri ekki tilefni til þess að þau gjöld sem eftir eru, kolefnisgjaldið, bifreiðagjaldið og vörugjöld af ökutækjum, færu líka inn í þetta kerfi til að einfalda þetta enn frekar. Það er engin leið fyrir skattgreiðendur að átta sig á því hvort gjöld er að hækka eða lækka vegna þess einmitt að gjöldin eru svo mörg og margvísleg á bifreiðaeigendur, á fyrirtæki og heimili. Það verður að gera þetta gagnsærra og ég held að það gæti verið tilefni til þess að setja fleiri af þessum gjöldum inn í eitt gjald, í þetta kerfi eða annað kerfi (Forseti hringir.) sem yrði tekið upp. (Forseti hringir.) Eins og ég sagði í upphafi er ég ekki fráhverf því að taka upp nýtt kerfi í skattlagningu á bifreiðum en þetta krefst mikillar yfirlegu á þinginu, (Forseti hringir.) bæði hér í þingsal og í hv. efnahags- og viðskiptanefnd.

(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutímann.)