156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

123. mál
[18:31]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Ég fullyrti ekkert um það. Ég bara velti því fyrir mér hvort það gæti ekki verið hagkvæmt og meira gagnsæi sem fælist í því að taka þessi gjöld sem eftir eru í þessari skýringartöflu sem frumvarpið lýsir sem eftirstandandi gjöldum — en eftir þessa miklu einföldun, ef þetta frumvarp nær fram að ganga, munu bara standa eftir kolefnisgjaldið, bifreiðagjaldið og vörugjaldið af ökutækjum, vörugjaldið sem leggst á við innflutning á bifreiðum — og hvort það væri ekki heppilegra að setja þau inn í þetta notkunarmódel. Fyrir utan gegnsæið þá er annað sem gæti haft jákvæð áhrif, það myndi draga kannski líka úr sveiflum sem eru í tekjum ríkissjóðs þegar innflutningur á bifreiðum sveiflast. Hann getur sveiflast mjög mikið eftir bara árferði á heimsmarkaði og við þekkjum það. Þá dragast tekjurnar mjög mikið saman hjá ríkissjóði og við höfum ekki farið varhluta af því á einhverjum tímapunkti. Ég bara velti því fyrir mér hvort það mætti verða til þess að draga t.d. úr þessum sveiflum fyrir ríkissjóð ef þessi gjöld af notkun bíla yrðu sett á þessu stigi en ekki við innflutninginn og annað. Bensíngjaldið, eins og hv. þingmaður nefndi, bensín verður áfram selt, og kolefnisgjaldið yrðu þá færð inn í þetta. En minn draumur er auðvitað og ég legg alltaf áherslu á það að kolefnisgjaldið þarf auðvitað að fara af. Kolefnisgjaldið á að fara af bifreiðum. Það er sett á í einhverjum mjög óljósum tilgangi sem sagður er vera að draga úr losun CO2 sem enginn hefur staðfest hvort skipti nokkru máli yfirhöfuð. En mest íþyngjandi aðgerðin (Forseti hringir.) gagnvart fjölskyldum í landinu er þetta kolefnisgjald og við eigum að hafa það markmið að afnema það.