156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

123. mál
[18:46]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir andsvarið. Í fyrsta lagi finnst mér bara áhugavert að heyra þetta varðandi ökutæki erlendra sendiráða, að þau séu undanþegin þessu hér. Eins og ég vék að í máli mínu áðan þá finnst mér ósköp eðlilegt að þeir sem nota vegina greiði fyrir það og ætla að vera samkvæm sjálfri mér þar. Mér fyndist því að þessi ökutæki ættu ekki að vera undanþegin þessu. Ég hef ekki upplýsingar um hvernig þetta er erlendis en ég er bara þeirrar skoðunar að alveg sama hvar við erum í heiminum þá eigum við að fylgja þeim lögum og reglum sem eru í því landi þar sem við erum stödd og að það eigi að gilda um sendiherra og aðra embættismenn líkt og aðra landsmenn.