kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Þetta eru búnar að vera aldeilis áhugaverðar umræður hér í dag og munum við taka þessa punkta með okkur inn til efnahags- og viðskiptanefndar og rýna þá vel.
Það er til umræðu þetta nýja tekjuöflunarfyrirkomulag til ríkisins til að standa undir vegakerfinu. Þetta er stórt skref í átt að sjálfbærni, sanngirni og gegnsærri skattlagningu ökutækja og umferðar á Íslandi. Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um kílómetragjald er mikið svar við þeirri áskorun að tryggja stöðugar tekjur til vegakerfisins í ljósi hraðrar þróunar í orkuskiptum og breyttra samgangna. Það kemur ekki í stað nýrra skatta heldur endurskipuleggur tekjuöflun ríkissjóðs af ökutækjum á sanngjarnari og gegnsærri hátt.
Síðasta ríkisstjórn hóf þessa vegferð árið 2021 til að bregðast við þeirri staðreynd að tekjur ríkissjóðs af ökutækjum og eldsneyti hafa rýrnað umtalsvert og munu halda áfram að fjara út. Ástæðurnar eru góðar; fjölgun rafbíla og sparneytnari bifreiða á vegunum, en þær krefjast þess að við endurskoðum hvernig við fjármögnum vegakerfið. Þrátt fyrir breytingar á samsetningu ökutækjaflota þjóðarinnar breytist ekki sú staðreynd að við þurfum að halda áfram að fjármagna viðhald og uppbyggingu vega. Fjármálaáætlun ríkisins gerir ráð fyrir að 1,7% af öllum tekjum ríkissjóðs komi af ökutækjum og umferð. Þetta frumvarp er leiðin til að tryggja áframhaldandi fjármögnun á sanngjarnari hátt.
Frumvarpið leggur til að innleitt verði kílómetragjald fyrir öll ökutæki með svipuðu fyrirkomulagi og þegar hefur verið tekið upp fyrir rafbíla, vetnisbíla og tengiltvinnbíla frá og með janúar 2024. Frá og með 1. júlí 2025 munu öll ökutæki greiða kílómetragjald sem byggist á eknum kílómetrum. Bílar undir 3,5 tonnum munu greiða 6,7 kr. á hvern ekinn kílómetra. Jafnframt verður öllum öðrum gjöldum á jarðefnaeldsneyti nema kolefnisgjaldinu aflétt sem leiðir til þess að bensín- og dísilolía lækka umtalsvert í verði. Samhliða þessari breytingu er lögð til hækkun á kolefnisgjaldi um 25%, sem hækkaði um 60% í lok síðasta árs eins og hefur komið fram í nokkrum ræðum í dag. Markmiðið með því er að viðhalda fjárhagslegum hvötum til að skipta yfir í vistvænni orkugjafa.
Það er auðvitað eðlilegt þegar um svona stóra kerfisbreytingu er að ræða að það vakni upp umræða og gagnrýni og fólk svona almennt séð er frekar hrætt þegar er verið að skipta um kerfi. Það er algerlega eðlilegt og við þurfum auðvitað bara að rýna þessar áhyggjur vel. Það hefur komið fram að þetta sé landsbyggðarskattur og fleira og mig langar að fara yfir nokkra punkta sem hafa vakið mikla umræðu eða töluverða umræðu við framlagningu þessa frumvarps. Eins og ég sagði áðan er þetta ekki í fyrsta skipti sem þetta frumvarp er lagt fram heldur erum við á öðrum snúningi í því. Það er algerlega eðlilegt af því að bíllinn er þarfur þjónn landsmanna að allir hafi skoðanir á gjaldtöku á umferð. Ég vil kannski þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir hans góðu ræðu þar sem hann fer yfir kosti og galla mismunandi gjaldtöku af umferð. Mér fannst sú ræða mjög góð og ég mun taka þá ræðu sérstaklega með mér inn í umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd. En það er eðlilegt að fólk hafi áhyggjur af verðhækkunum á eldsneyti og margir hafa haft áhyggjur af því að olíufélögin nýti tækifærið til að auka framlegð sína. Það var þá gott að heyra það að fjármálaráðuneytið hefur átt samtalið við Alþýðusamband Íslands um eftirlitið með verðlagningu jarðefnaeldsneytis og að ráðherra muni veita frekari innsýn í þau mál í umræðum um frumvörp. Það þótti mér gott að heyra.
Það hefur líka komið fram í umræðunni að rafbílar missi skattalegt forskot en það hefur verið bent á að rafbílar muni nú greiða sama kílómetragjald og bílar sem brenna jarðefnaeldsneyti og það verði áfram hagstæðara að aka rafbíl, bæði vegna lægri rekstrarkostnaðar og vegna hækkunar á kolefnisgjaldi sem gerir notkun á jarðefnaeldsneyti dýrari. Svo er þetta þannig að bifreiðagjöld á rafbílum eru lægri en á dísil -og bensínbílum.
Það hefur líka komið fram sú spurning í umræðunni af hverju allir bílar undir 3,5 tonnum greiði sama gjald. Það kom fram í máli ráðherra hér áðan að útreikningar sýna að munurinn á vegsliti bíla sem vega 2 tonn og 3,5 tonn er hverfandi. Þess vegna þótti ekki rétt að gera gjaldamun á þessum flokkum enda hefur slíkur munur verið óverulegur og getur leitt til ósanngjarnra afleiðinga, til að mynda fyrir rafbíla.
Svo er það sem hefur líka komið fram í nokkrum ræðum í dag, áhyggjur sem ég tek alvarlega og við þurfum að rýna sérstaklega, það að kílómetragjaldið sé landsbyggðarskattur. Það var auðvitað mjög sterkt í umræðunni hér á síðasta þingi að þetta væri landsbyggðarskattur og það þurfum við að rýna vel. Það hafa komið fram áhyggjur fólks um að þetta muni hækka flutningskostnað um landið. Það er kannski ekki alveg rétt því að það eru ekki allir vörubílar sem munu hækka í gjöldum, það eru bara allra stærstu vörubílarnir með aftanívagna sem munu greiða meira, en þá má líta til þess að það er verið að leiðrétta óeðlilega lága skattlagningu á þyngstu tengivagnana. Hingað til hefur t.d. 18 tonna eftirvagn greitt nánast það sama og venjulegur rafbíll.
Svo hefur verið í umræðunni hvort þetta muni hækka rekstrarkostnað meðalbílsins en það er ekki alveg þannig. Breytingarnar hafa verið stilltar þannig að áhrifin á meðalfólksbíl verða lítil. Bílar sem eyða 7,5 lítrum á 100 km munu greiða svipað í nýja kerfinu og í gamla kerfinu og á ársgrundvelli munu breytingarnar því skipta fólk aðeins nokkur þúsund krónum, ýmist til hækkunar eða lækkunar eftir eyðslu. Það var í einni ræðunni í dag talað um að þetta væri mikið bákn og mjög flókið og fólk ætti mjög erfitt með að skrá þetta. Sjálf keyri ég nú á dísilbíl og ég álpaðist inn á island.is til að athuga hversu flókið þetta væri og ég get held ég fullvissað þingheim um að það er mjög einfalt að skrá inn kílómetragjöld, þetta er mjög einfalt. Ég get verið hérna með liðveislu og handleiðslu ef fólk óskar þess en þetta er ekki flókið.
Stóra spurningin sem við sitjum svo eftir með er: Af hverju erum við að breyta kerfinu? Á árunum 2006–2023 lækkuðu tekjur ríkisins af olíu- og bensíngjöldum um 43%. Þessi þróun er óumflýjanleg og áframhaldandi. Með innleiðingu þessa kerfis er verið að ljúka við þá vegferð sem fyrri ríkisstjórn hóf með breyttri gjaldtöku af umferð. Kerfið sem er verið að innleiða hefur reynst vel fyrir rafbíla og eins og kom fram í ræðu hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra eru um 55.000 bílar nú þegar skráðir í þetta kerfi og það hefur bara gengið vel. Ég efast um það að hinir eigendur ökutækja í þessu landi, ég held að þeir eigi bara jafn auðvelt með þetta og hinir 55.000. Ég held að eigendur rafbíla séu ekkert sérstaklega greindari en aðrir eigendur ökutækja, þannig að ég hef ekki áhyggjur af því.
Það er algerlega óumflýjanlegt að við verðum að breyta tekjuöflunarkerfinu og það hefur verið gert með varfærnum hætti þar sem jafnvægi er milli skattlagningar og hagrænna hvata til orkuskipta. Við verðum að þora að breyta kerfinu og við gætum þurft að gera einhverjar breytingar með tímanum til að laga eitthvað til, en við verðum að skipta um kerfi og ég vona að þingheimur átti sig á nauðsyn þess að lokum.
Virðulegur forseti. Framkvæmd gjaldtöku og skráningar á rafbílum hefur gengið vel og með þessari breytingu tryggjum við áframhaldandi fjármögnun vegakerfisins á sanngjarnan og sjálfbæran hátt. Kerfið er ekki skattahækkun heldur einföldun og leiðrétting á núverandi ósamræmi. Breytingin kemur verst út fyrir þá sem eru á stórum og eyðslufrekum ökutækjum á höfuðborgarsvæðinu en mun gagnast þeim sem keyra minna og eru á sparneytnari bílum og sérstaklega á landsbyggðinni. Það verður alltaf hægt að finna einhvern hóp sem kemur verr út úr nýja kerfinu en úr gamla kerfinu, en núverandi kerfi er líka langt frá því að vera fullkomið. Það er réttlætismál að allir greiði í samræmi við notkun sína á vegakerfinu og með þessu kerfi tryggjum við framtíðartekjur til vegagerðar á Íslandi á gegnsæjan og réttlátan hátt.
Mér fannst líka áhugavert í ræðu hv. þm. Pawels Bartoszeks hérna áðan þegar hann talaði um það að allir vildu ræða um nýjar veglagningar og framkvæmdir í samgöngukerfinu en fæstir vildu ræða gjaldtökuna. Það var nefnilega svo áhugavert á fundi hjá Samtökum iðnaðarins hér fyrir stuttu þar sem var rætt um innviðaskuld í vegakerfinu en hún er 200 milljarðar. Einhvern veginn verðum við að horfast í augu við þessa upphæð og við verðum að fá tekjur inn í kerfið svo við getum horfst í augu við þessa stóru innviðaskuld. Þetta er ein lítil leið til þess og við þurfum að gera meira og hugsa í fleiri leiðum: Hvernig ætlum við að takast á við þessa stóru skuld?
Enn og aftur vil ég bara þakka fyrir þessa áhugaverðu umræðu hér í dag. Að lokinni henni gengur hún til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og þar munum við auðvitað kalla eftir umsögnum frá hagaðilum og rýna vel þau atriði sem hafa komið fram í dag. Við höfum kannski ekki öll svörin, alla vega ekki ég, en það er alveg ljóst eftir þessa umræðu að það eru þarna nokkur mál sem við þurfum að rýna vel og skoða.
Ég hlakka til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd og vil þá þakka líka fyrir þessa umræðu hér í dag.