156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.

8. mál
[19:59]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er mjög góð spurning frá hv. þingmanni. Það komu fram þegar við mæltum fyrir málinu, ætli það séu ekki tvö ár síðan, ár eða tvö, umsagnir og einmitt fín umsögn frá Háskólanum á Bifröst. Ég hef persónulega algjörlega verið opinn fyrir því að fá alla að borðinu. Ég held að það væri kannski meira mál einmitt utanríkismálanefndar, sem fer síðan með málið, og framsögumannsins að mögulega leiða þá frekari tillögu um það. Við þekkjum að það hefur náttúrlega verið töluvert í umræðu sem kemur úr Bifrastaráttinni á síðustu dögum varðandi ýmsa þætti og þar er verið að efla starf sem snýr að mjög tengdum málum sem við erum að ræða hér, sem snýr að viðnámsþrótti samfélagsins raunverulega. Ég vil bara tala um þetta heildstætt, með einföldum hætti. Háskólinn á Akureyri er mikið í norðurslóðamálunum sem er síðan orðið risamál. Í starfi NATO-þingsins undanfarin sjö, átta ár, sem ég hef verið þar, þá er gríðarleg breyting sem hefur orðið þar á allri þeirri umræðu. Umræðan um lágspennusvæði á norðurslóðum, hún hefur bara verið víkjandi. Þetta er að breytast svo hratt. En ég er mjög opinn fyrir því og finnst bara mjög eðlilegt að allt háskólasamfélagið komi að þessum málum en það á bara að finna einhvern grunn og hvernig eigi að fara með það. Þetta er bara svona tillaga en málið snýr meira að efninu frekar en umgjörðinni, það er það sem ég er að fara með þessu.