rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.
Forseti. Takk fyrir þetta góða svar og þá langar mig kannski í seinna andsvari mínu að spyrja, þar sem ég hef ekki tekið þátt í umræðu um þetta mál áður og því hefur kannski verið velt upp í fyrri skiptum sem þetta hefur verið flutt, þ.e. hlutverki rannsóknarsetursins gagnvart Alþingi. Hv. þingmaður ræddi um vinnu við gerð þjóðaröryggisstefnu en ég er svona að velta fyrir mér hvort hv. þingmaður hafi eitthvað velt fyrir sér almennt skýrslugjöf eða einhverju slíku til þingsins, að miðla upplýsingum með einhverjum hætti þá hugsanlega til utanríkismálanefndar.