156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.

8. mál
[20:04]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Það eru sannarlega viðsjárverðir tímar og þróunin í heiminum og atburðir nýliðinna ára hafa undirstrikað mikilvægi öryggis- og varnarmála og þess að við skilum ekki auðu í þessum málaflokki. Það gætir nefnilega enginn hagsmuna Íslands ef við gerum það ekki sjálf. Þess vegna var alveg ótrúlega athyglisvert að vera aðstoðarmaður utanríkisráðherra þegar Sjálfstæðisflokkurinn tók loksins við utanríkisráðherraembættinu eftir nokkurra ára bið en þá var t.d. ekki starfrækt sérstök varnarmálaskrifstofa í utanríkisráðuneytinu á Íslandi. Eins og við þekkjum er utanríkisráðherra Íslands bæði utanríkisráðherra, hann er varnarmálaráðherra, utanríkisviðskiptaráðherra og þróunarsamvinnuráðherra. En það var engin varnarmálaskrifstofa í utanríkisráðuneytinu á þessum tíma og eitt af því fyrsta sem utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins gerði var að endurreisa þessa skrifstofu, sömuleiðis að setja á fót sérstaka deild fjölþáttaógna, auk fjölmargra annarra mikilvægra skrefa sem voru stigin í þessum málaflokki.

Virðulegi forseti. Við verðum sömuleiðis að hafa það hugfast að við erum herlaus smáþjóð og ég hef tekið eftir því, sem er jákvætt, að það virðist vera þverpólitísk samstaða á þinginu um mikilvægi öflugs samstarfs borgaralegra stofnana á vettvangi öryggis- og varnarmála af því að þar verðum við auðvitað að gera hvað við getum til að auka viðbúnaðar- og viðbragðsgetu.

Hér erum við að ræða tillögu hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar um rannsóknarsetur öryggis- og varnarmála og ég vil þakka honum kærlega fyrir málið og fyrir framsögu sína í málinu. Ég er meðflutningsmaður á þessu máli og styð það heils hugar. Hv. þingmaður hefur sannarlega verið öflugur í málflutningi og baráttu í þessum málaflokki og hefur m.a. lagt þessa tillögu fram ítrekað, eins og hann rakti hér áðan í ræðustól. Eins og hv. þingmaður bendir á verðum við að skrásetja þekkingu og auka fræðilega umfjöllun á sviði öryggis- og varnarmála. Þetta er gríðarlega mikilvægt í þágu öryggis Íslands en með þessu gætum við tengt saman fólk og stofnanir og aukið og dýpkað þekkingu. Sömuleiðis, eins og hv. þingmaður hefur komið inn á, gætum við með þessu aukið samstarf við erlendar rannsóknarstofnanir. Hv. þingmaður og framsögumaður málsins er auðvitað öllum hnútum kunnugur um alþjóðlegt samstarf á þessu sviði og mig langar bara að taka undir með hv. þingmanni að tillagan snúi að því að sérfræðiþekking á málaflokknum sé einn af hornsteinum þjóðaröryggisstefnunnar. Ég vonast því til þess að þetta mál fái góða og vandaða þinglega meðferð hér og að við bara klárum þetta mál hér í þetta skipti.