156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.

8. mál
[20:07]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir framsöguna og þakka honum sérstaklega fyrir staðfestuna og fyrir það að halda þessu til streitu með því að hafa mælt fyrir þessu sennilega nokkrum sinnum áður. Að mínu mati er hér um að ræða mikilvægt mál, sérstaklega með tilliti til þess ástands sem við upplifum nú um stundir í alþjóðamálum. Í þessari þingsályktunartillögu er gert ráð fyrir því að til þess að rannsóknasetrið sé starfhæft þurfi að tryggja fjárveitingu af hálfu ríkisins fyrir tvo starfsmenn við setrið. Almennt séð þá er ég kannski ekkert sérstaklega upprifinn yfir auknum fjárútlátum en engu að síður er hér um að ræða mikilvægt mál, að ég tel, og ég held að það standi rök til þess að þessu fé væri vel varið ef því væri varið til þessa málaflokks.

Frú forseti. Á setrinu yrðu stundaðar rannsóknir sem nýtast á hagnýtan og fræðilegan hátt fyrir þá sem undirbúa og taka ákvarðanir um hernaðarlegt og borgaralegt öryggi. Við erum nú í því umhverfi að rannsóknir sem þessar eru okkur mikilvægar þó að það sé nokkur nýlunda fyrir okkur Íslendinga að þurfa að hugsa um hernaðarlegt öryggi lands og þjóðar okkar. Þeir sem koma og þurfa að hugsa um þetta eru starfsmenn ráðuneyta, Landhelgisgæslu og eftir atvikum lögreglu. Starfsmenn framangreindra stofnana geta nýtt sér starfsemi þessa seturs og dýpkað og eftir atvikum víkkað þekkingu sína. Þá mun setrinu líka vera ætlað að tengjast erlendum rannsóknastofnunum í alþjóðlegu samstarfsneti Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands. Eins og hér hefur komið fram getum við alveg talað um það hvort þessu setri yrði komið fyrir annars staðar heldur en í Háskóla Íslands.

Það er óhætt að segja að innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022 hafi gerbreytt þróun í öryggis- og varnarmálum í Evrópu og ekki síst hér á Norður-Atlantshafi. Þegar við bætist að forseti og stjórn Bandaríkja Norður-Ameríku virðast hafa breytt afstöðu sinni í alþjóðamálum og draga fremur taum Rússa en bandamanna sinna í NATO þá minnkar ekki ástæðan til þess að við hugum vel að vörnum lands og þjóðar. Í yfirlýsingu norrænu forsætisráðherranna frá 2022, sem nefnd er í greinargerð þingsályktunartillögunnar, er vísað til hættuástands og átaka sem mæta þurfi með sameiginlegu stöðumati, samvinnu í allsherjarvörnum, hagvörnum og viðnámsþrótti gagnvart skaðvænlegum aðgerðum á borð við netárásir og fjölþáttaógnir. En það eru einmitt þessar fjölþáttaógnir, frú forseti, sem við þurfum að hafa sérstaklega í huga hvað Ísland varðar, ekki hvað síst netárásir. Það er mikilvægt að við getum mætt þessum ógnum, nestuð vel með rannsóknum fræðimanna.

Frú forseti. Það hefur komið fram í þessari umræðu, sem er ákaflega mikilvæg og skemmtileg, áhugaverð a.m.k., að efni frá þessari hugveitu gæti nýst við gerð þjóðaröryggisstefnu. Ég er alveg fullviss um að svo sé. Ég er líka sannfærður um að jafnvel þó svo að Alþingi og nefndir Alþingis muni leita hugsanlega eftir upplýsingum og gögnum frá þessari nefnd þá muni nefndin líka leita eftir upplýsingum frá Alþingi. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við höfum það í huga að við erum sífellt, alþingismenn, að sækja upplýsingar sem nýst geta við svona starf.

Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra en ég bara leyfi mér að þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni sérstaklega fyrir þessa þingsályktunartillögu sem ég reyndar er meðflutningsmaður að. Síðan er rétt líka að ítreka það og taka undir með hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur að það var auðvitað mikilvægt að vakna svolítið til lífsins hér, eftir að hafa má segja svolítið sofnað á verðinum, eðlilega, þegar kalda stríðinu lauk, og varnarmálaskrifstofu var aftur komið á laggirnar í tíð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í utanríkisráðuneytinu og því ber að fagna og það er kannski á þeim grunni sem við getum byggt núna.