rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.
Virðulegi forseti. Ég hef reyndar ekki tekið þátt í svona umræðu, ég reikna með að hv. þm. Víðir Reynisson gæti hafa gert það. Hins vegar gæti ég ímyndað mér að eyjan í norðri hafi jafnvel heitið Thule, ég veit það ekki, á æfingunni. En svona æfingar eru gríðarlega mikilvægar og ég held að þessi æfing sem var um daginn hafi skilað gríðarlega miklum ávinningi. Hvað er það sem við stöndum frammi fyrir? Við stöndum frammi fyrir því að vera eyja sem er tengd, held ég, með fjórum köplum. Auðvitað verða þeir ekki allir klipptir í einu eða skemmdir í einu en það er ákveðin hætta á því að þeir verði skemmdir, einn eða fleiri, og þá þurfum við að takast á við það vegna þess að slíkar skemmdir munu allar hafa áhrif á okkar daglega líf. Ég myndi því raunverulega leyfa mér að hvetja til þess að hægt væri að hafa svona skrifborðsæfingar, eða iPad-æfingar, sem myndu eftir atvikum hjálpa til við það að meta þessar ógnir.