156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.

8. mál
[20:15]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég er að reyna að muna hvað ég var að hugsa, ég ætlaði að koma með það í framhaldinu, það var svona ákveðinn þáttur í þessu. Mér þótti á sínum tíma gríðarlega fróðlegt að upplifa sjálfur svona æfingu. Ég held að það gæti orðið gríðarlegur lærdómur að fá nákvæmlega svona æfingu til Íslands. Það hafa kannski verið fleiri sem ekki fóru snemma að sofa í gær, hafa horft á ríkissjónvarpið. Það var verið að endursýna Skuggastríðið í gærkvöldi, þessa norrænu þætti þar sem menn voru að skoða þetta en þeir voru fyrst sýndir í fyrra. Ja, maður er að horfa á þáttinn núna og þetta er m.a. um strengina. Þetta snýst um vindorkuna, strengina og allt í sjó og verið að sýna hvernig þetta virkar allt saman. Þetta eru bara fjórir strengir hjá okkur, við eigum allt undir þeim. Það var verið að skoða það að efla gervihnattadæmið, það gæti kannski annað 1–2% af gagnamagninu miðað við strengina. En miðað við það hvað kemur fram í þessum þáttum og hvernig þetta er sýnt — menn segja: Ókei, þeir eru fjórir, þeir fara ekki allir í einu. Þeir sem horfðu á þáttinn í gær og sáu hvað var verið að gera — er eitthvað sérstakt mál að taka út fjóra strengi út af fyrir sig? Það eru ekki nema þrjú ár síðan rússnesk herskip voru fyrir utan Seyðisfjörð, stoppuðu þar í þrjá til fjóra daga, við Farice-strenginn, á því svæði. Þetta er því ekkert flókið í sjálfu sér miðað við það sem maður var bara að horfa á í sjónvarpinu í gær. Að lokum: Ég var að hlusta á Sóleyju Kaldal, öryggissérfræðing á Rás 1 í morgun. Hún sagði, og þetta hef ég upplifað sjálfur: Þingmenn sem eru að sinna þeim málum sem snúa að öryggi og vörnum landsins hafa ekki grætt atkvæði á því hingað til. Mér fannst þetta ágætt komment hjá henni, og það er alveg garanterað. Það gæti hins vegar mögulega breyst á næstu misserum þegar fólk fer að átta sig á alvöru máls.