156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.

8. mál
[20:18]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, þetta er mjög áhugaverð umræða og nauðsynleg. Það er kannski áhugavert að þingmenn fái ekki nein vinsældaratkvæði út á það að hafa áhuga á þessu. Þó kann að vera að staðan í heimsmálunum skipti máli hvað það varðar; nú þegar við verðum vör við þá hliðrun sem er að verða í umræðunni, þ.e. að maður fari að ímynda sér að stjórn Bandaríkjanna sé að draga taum Rússa fremur en bandamanna sinna í NATO og eftir atvikum lands sem hefur verið ráðist inn í, fullvalda þjóðar sem hefur verið ráðist á.

Maður er kannski svolítið barnalegur að halda að það sé erfitt að taka alla fjóra strengina út í einu. Það er sennilega ekkert mjög erfitt í vel skipulagðri árás, getum við sagt. Svo er annað sem maður veltir fyrir sér, af því að við segjum: Ef við missum alla strengina þá getum við notað gervihnetti. En er það raunverulegt? Er það raunverulega þannig? Í fyrsta lagi, eins og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson nefndi, þá er það mjög lítið gagnamagn sem getur farið þar um. Og hverjir eiga þessa gervihnetti? Eru þeir tilbúnir til að hleypa okkur með gögn í gegnum þessa hnetti? Ég er ekkert viss um það. Við þurfum kannski líka að horfa á æfingu þar sem við værum algjörlega sambandslaus, ekki bara sambandslaus um strengina heldur líka sambandslaus um loftið.