156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.

8. mál
[20:20]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Frú forseti. Hér erum við að ræða mjög mikilvægt mál í ljósi stöðunnar sem við erum í; við erum að upplifa á hverjum degi breytingar á varnar- og öryggismálum í nágrenni okkar. Ég held að það sé mikilvægt á svona tímum og í svona umræðu að við horfum á alla þá þætti sem mögulega geta orðið okkur til aðstoðar við það að undirbúa okkur fyrir einhverja atburði sem eru kannski erfiðir að tala um. Hv. þingmaður nefndi hérna áðan að engir þingmenn hefðu grætt atkvæði á því að ræða þessi mál en við verðum samt að ræða þau og sá sem hér stendur óttast það ekki ef það skapar honum engar vinsældir. Það verður bara að taka því. Við verðum að geta tekið umræðuna um okkar varnar- og öryggismál á yfirvegaðan og góðan hátt. Samstarf við fræðasamfélagið er mikilvægur þáttur í því. Það minnkar líkurnar á því að umræðan sé í einhvers konar upphrópunum og að menn reyni að finna einhverjar skyndilausnir. Því lengra sem við komumst í að fá fræðasamfélagið með okkur í það að ræða þessi mál og skoða þau, og að hægt verði að mynda einhvers konar rannsóknasetur, eins og þessi þingsályktunartillaga fjallar um, þeim mun betra. Það er mjög mikilvægt í þeirri nálgun að við horfum einhvern veginn á þessi mál heildstætt eins og mér finnst reyndar koma ágætlega fram í greinargerðinni.

Mig langaði að hnykkja á því hér að við horfum á slíkt rannsóknasetur eða fræðasetur, eða hvernig sem við myndum útfæra það á endanum, með þeim hætti að við horfum á þróun mála, lesum í stöðuna og hvernig hún er, líka innan lands fyrir okkar viðbúnað, hvað aðrar þjóðir eru að gera, hvernig við getum borið okkur saman og hvert hlutverk okkar borgaralegu stofnana eigi að vera í þessu. Mér finnst eins og í greinargerðinni sé farið dálítið í þessa átt og langaði að hnykkja frekar á því að við þurfum að horfa á þetta út frá sjö grunnviðmiðum NATO um seiglu þjóða og getuna til að geta tekið á móti erlendum herafla þegar hann kemur til landsins til að aðstoða okkur ef þörf krefði á einhverjum tímapunkti. Þá þurfum við að vera með þessa þætti alveg á hreinu. Sú vinna er auðvitað í gangi núna og eins og hæstv. utanríkisráðherra hefur farið yfir, bæði í þingsal og í fjölmiðlum, er þessi stefna í öryggis- og varnarmálum. Ég held að þetta tali allt saman því að við þurfum, eins og ég er að reyna að segja, að horfa á þetta heildstætt og út frá mörgum sjónarmiðum. Eitt á alls ekki að útiloka annað. Ég mun fagna því að taka þetta til góðrar umræðu í hæstv. utanríkisnefnd, taka þátt í umræðunni, og hlakka til að geta kallað til okkar þá sérfræðinga sem fjalla um þessi mál á fræðilegan hátt og fá álit ýmissa fagaðila á því hvernig þetta mál gæti þróast.