156. löggjafarþing — 10. fundur,  4. mars 2025.

rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.

8. mál
[20:24]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég man ekki alveg hvernig það er orðað í greinargerðinni, en það sem ég kom inn á í andsvarinu áðan er það sem mér finnst skipta mestu í þessu, þ.e. áfallaþol þjóðarinnar, viðnámsþrótturinn, það er það sem þetta snýst um, og það er líka þetta fyrsta viðbragð ef eitthvað kemur upp á sem hv. þingmenn þekkja sem hafa tekið þátt í þessari umræðu; fjölþáttaógnir, netöryggismálin, fæðuöryggi, raforkuöryggi. Ég get alveg sagt það hér að þegar ég byrjaði á þingi 2016 voru fyrstu ræður mínar um flutningskerfi raforku, áhyggjur mínar af uppbyggingu og skorti á uppbyggingu þess. Það fékk engar undirtektir, það þótti eitthvað hálfskrýtið. Og við sjáum hversu langt það þurfti að fara; það þurfti óveðrið í desember 2019 til að vekja fólk og almenning af þeim svefni, eftir að það varð sex daga rafmagnslaust á Dalvík, og eftir að flutningskerfið brást, sem hafði aldrei gerst áður, á nokkrum stöðum í sama veðrinu. Þetta er alltaf það sama. Og Reykjavíkurflugvöllur — af hverju er maður að tala um þessa hluti? Þetta snýst um viðnámsþrótt samfélagsins, áfallaþol. Þetta tengist allt. Og þegar þú ferð að veikja grunninnviði landsins með markvissum hætti, eða ætlar þér það, ertu að minnka þetta áfallaþol í viðnáminu. Ég er svolítið á þessu; ég hef t.d. verið upptekinn af því að benda á þetta með þyrlu til Gæslunnar. Það er klárlega mikill þáttur í þessu að geta sinnt því borgaralega hlutverki okkar, leit og björgun, hér í Norður-Atlantshafi, á svæði sem er upp á 1,9 milljónir ferkílómetra, að því sé t.d. sinnt almennilega með góðri þyrluþjónustu á vegum Gæslunnar.