rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa umræðu, hún er gríðarlega mikilvæg. Ég vona svo sannarlega að umfjöllunin í utanríkismálanefnd verði góð, ég sat nú þar sjálfur í nokkur ár. Ég hef trú á að þetta fari alla leið núna. Það bara getur ekki annað verið, staðan er bara þannig í okkar umhverfi í svo mörgu. Hugmyndafræðin er auðvitað sú að þetta sé heilsteypt nálgun. Ég held að það sé í raun bara setningin, þ.e að bæta áfallaþolið, seigluna, viðnámsþróttinn. Þegar við förum í gegnum þetta þá eru þetta bara svo mörg svið. Ég hef þá trú að almenningur sé svolítið að vakna í þessari umræðu, átta sig á því hverjir þessir helstu innviðir landsins eru og vilja verja þá. Sjálfstæðisflokkurinn, á landsfundi um helgina, svo að ég komi landsfundinum að, samþykkti stjórnmálaályktun um að landvarnir landsins og alþjóðaflugvellir fari undir skipulagsvald ríkisins. Þetta er það sem ég byrjaði að benda á og skrifa um fyrir rúmum tíu árum. Það var ekki mikil stemning fyrir þessu þá, skal ég segja ykkur, hv. þingmenn sem hér sitjið, fyrir tíu árum. En svona þróast hlutirnir þegar við förum í alvarlegt ástand, þegar við förum að sjá alvarlega hluti gerast. Sofandahátturinn hefur verið svo mikill og stjórnsýslan hefur ekki brugðist við eins og hún átti að gera, eins og við þekkjum með lokun flugbrautarinnar, sem mikil umræða hefur verið um síðustu vikurnar. Við þurfum að átta okkur á hvað getur í raun gerst ef við erum ekki með skýra sýn á hvernig við ætlum að standa að hlutum sem snúa að grunninnviðum samfélagsins. Það er kannski stærsta klúðrið í þessum málum sem hefur komið upp árum saman að svona hlutir geti yfirleitt gerst.