156. löggjafarþing — 10. fundur, 4. mars 2025.
rannsóknasetur öryggis- og varnarmála.
8. mál
Frú forseti. Það þarf ekki að selja þeim sem hér stendur hve mikilvægt það er að vinna að seiglu samfélagsins eða getu til að takast á við áföll, bæði undirbúning og ekki síður eftirmála þeirra. Ég tek því aftur undir það með hv. þingmanni hve þetta er mikilvægt. Ef ég man rétt eru 19 þingmenn meðflutningsmenn á þessari tillögu og það mun ekki standa á þeim sem hér stendur að styðja þetta mál áfram.