156. löggjafarþing — 11. fundur,  5. mars 2025.

Störf þingsins.

[15:01]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég skora á ríkisstjórnina að setja af stað þjóðarátak í fæðuöryggi. Hér á ég við að efla innlenda matvælaframleiðslu og líka að bæði kortleggja og styðja við aðföng líkt og raforku, eldsneyti, áburð og annað sem þarf fyrir hana. Af hverju er þetta mikilvægt nú? Jú, við vitum að óvissan í heimsmálum er mikil. Bara í gær hækkuðu Bandaríkjamenn tolla á innflutning þeirra frá Kanada og Mexíkó, um fjórðung auk þess að herða viðskiptatakmarkanir gagnvart Kína. Við vitum að óvissan á mörkuðum er mikil og þetta bætist ofan á þá stöðu sem við höfum í Evrópu eftir innrás Rússa í Úkraínu.

Ég held að það efist enginn um það að alþjóðasamvinna er gríðarlega mikilvægt svar við þessari þróun. Við þurfum að vera í hagsmunabaráttu, styðja við mál bæði austan hafs og vestan, en við þurfum líka að byggja upp og bæta okkar áfallaþol. Hér er ég að hugsa um að það er mikilvægt varnarviðbragð að hugsa um innviði okkar og mér finnst skorta skilning á því. Mér finnst einfaldlega skorta skilning á því að landbúnaður er hluti af innviðum okkar. Hluti af okkar varnarviðbragði á að vera að byggja hann upp alveg eins og við horfum á aðra innviði, t.d. á Suðurnesjunum. Mér finnst hafa skort skilning á þessu hjá ríkisstjórninni sem hefur birst m.a. í tollamálunum gagnvart mjólkurbændum og það birtist okkur í Kastljósi í gærkvöldi þar sem garðyrkjubændur eru að hugsa um að hætta starfsemi vegna hækkana á raforkuverði. Þetta er allt eitthvað sem hægt er að breyta með lagasetningu og mun ekki standa á okkur í Framsókn að styðja við. Ég held þess vegna að við eigum þvert á flokka að styðja við þjóðarátak í fæðuöryggi. Munum að það er líka eitthvað sem mun efla lýðheilsu og efla efnahag okkar þjóðar til lengri tíma.