156. löggjafarþing — 11. fundur,  5. mars 2025.

Störf þingsins.

[15:22]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Mig langar að vekja athygli þingsins á þeim alvarlegu tíðindum sem bárust frá atvinnulífi Blönduóss og nærsveita fyrir helgi þar sem Kjarnafæði Norðlenska tilkynnti að ekki yrði starfað á Blönduósi næsta haust og að 23 af 28 starfsmönnum fyrirtækisins hefði verið sagt upp. Uppsagnirnar eru mikið högg fyrir samfélagið. Sláturhúsið er einn stærsti vinnustaðurinn í Húnabyggð og hlutfallslega jafngildir þetta næstum því að 3.000 manns myndu missa vinnuna í Reykjavík ef þetta er sett í samhengi.

Óvissan um framtíð sláturhússins er kannski ekki ný af nálinni og má færa fyrir því rök að þessi þróun sé fyrirséð. En það má líka færa fyrir því sterk rök að breytingar á búvörulögum, sem samþykkt voru á Alþingi í mars 2024 af síðustu ríkisstjórnarflokkum og hafa nú verið dæmd ólögmæt, hafi leitt til þessarar ákvörðunar fyrirtækisins. Breytingarnar fólu í sér að framleiðendafélögum var veitt undanþága frá samkeppnislögum. Það hafði þær afleiðingar að slík félög geta eða gátu stundað samráð sem áður var ólögmætt. Markmiðið var að hagræða í slátrun og vinnslu afurða frá bændum svo hægt væri að tryggja bændum hærri tekjur án þess að neytendur greiddu hærra verð. Þetta hefur ekki gengið eftir. Við höfum séð verðhækkanir, þá sérstaklega á lambakjöti, án þess að ávinningur skili sér til bænda.

Fram undan er að huga að atvinnutækifærum fyrir svæðið og verja þau störf sem eru að tapast. Hættan er sú að einstaklingar sem missa vinnuna þar sem atvinnulífið er fábreytt muni leiða til þess að fólk flytji burt af svæðinu ef ekki bjóðast ný atvinnutækifæri. Blönduós er á lykilsvæði þegar kemur að þróun atvinnulífs á Norðurlandi vestra. Þar má finna fjölbreytt tækifæri í landbúnaði, ferðaþjónustu, nýsköpun og þjónustu, svo fátt eitt sé nefnt. Það er brýnt að sveitarfélög og íbúar þess fái stuðning þingmanna og opinberra stofnana til að koma framfaraverkefnum sínum í farveg.

Ég vil líka skora á fyrirtækið Kjarnafæði Norðlenska að vinna með heimamönnum að frekari atvinnuþróun og koma þeim mikla húsakosti sem SAH hefur til umráða undir nýja starfsemi samfélaginu til heilla.