156. löggjafarþing — 11. fundur,  5. mars 2025.

Störf þingsins.

[15:31]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Þau ólög um grásleppuveiðar sem sett voru hér á síðasta vorþingi eru dæmigerð fyrir sérhagsmunagæslu fyrir þá aðila sem barist hafa fyrir því að kvótasetja og geta framselt, með hörmulegum afleiðingum. Þeir sem hafa fjárfest í greininni undanfarin ár sitja sárir eftir og geta margir hverjir ekki farið á veiðar en sumir neyðast til þess vegna þess að þeim er skylt að veiða 50% af því litla sem þeir fá úthlutað. Veruleikinn sýnir að fjöldi útgerða er með mjög litlar aflaheimildir en þær eru búnar að fjárfesta í búnaði. Þetta er eignaupptaka hjá fjölda sjómanna sem standa frammi fyrir þessu núna. Þegar lögunum var breytt þá voru lögin gerð þannig að það eru engin stærðarmörk á bátum sem veiða sem þýðir ekkert annað en áframhaldandi samþjöppun og færsla aflaheimilda á stærri skip, en í áratugi hefur það verið smábátaútgerðin sem hefur stundað þessar veiðar við strendur landsins. Fjöldinn allur af grásleppusjómönnum hefur frá því að þessi ólög voru sett í fyrra verið með ákall um að lögunum verði breytt til fyrra horfs því að fjárfestingarnar eru ónýtar og samlegðaráhrif við strandveiðar eru eyðilögð. Þetta eru sjómenn í brothættum byggðum landsins. Það er krafa stórs hóps grásleppusjómanna að Landssamband smábátaeigenda hefji málsókn á hendur ríkinu vegna þessa óréttar sem þeir eru beittir með eignaupptöku og vera sviptir atvinnufrelsi.

Samþjöppun í sjávarútvegi hefur verið gífurleg undanfarin ár og það er ekki góð þróun að örfáir aðilar hafi á sinni hendi sameiginlega sjávarauðlind landsmanna. Það er réttur sjávarbyggðanna til atvinnufrelsis í sínu nærumhverfi og við það verðum við að standa og tryggja að það verði áfram. Flokkur fólksins hefur tryggt 48 daga (Forseti hringir.) með góðri ríkisstjórn og við ætlum að taka á þessu máli.