156. löggjafarþing — 11. fundur,  5. mars 2025.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

1. mál
[15:42]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér skal nefnt að ég fylgdist eins og aðrir landsmenn með því þegar þessir flokkar voru að mynda ríkisstjórn og ég man eftir því hvað var sagt eftir fyrsta fundinn. Þá voru menn alveg sammála um það að fækka ráðuneytum. Og annar fundurinn: Alveg sammála um að fækka ráðuneytum. Ég held að í þriðja, fjórða og fimmta hafi það eina sem kom fram verið að það ætti að fækka ráðuneytum. Ég verð að viðurkenna, virðulegur forseti, að ég hélt að ég væri að sjá hér alvörufækkun á ráðuneytum. En eftir alla þessa fundi — og svo gáfust menn upp á því að tala um málin og skrifa upp almennilegan stjórnarsáttmála, allt í lagi með það — þá kom fækkun um eitt ráðuneyti. Eins og hér hefur komið fram hjá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur hefði verið skynsamlegt, ef menn vilja í alvöru fara að hagræða og ná árangri, að fara aðeins dýpra ofan í það. Við erum núna líka búin að sjá hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar sem eru ansi þunnar. Ég held að það sé miklu betra að vera með minni upphrópanir og (Forseti hringir.) vanda betur til verka því að það er svo sannarlega göfugt og mikilvægt og algjört forgangsmál að hagræða í ríkisrekstri.