breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegi forseti. Bara út af orðum ákveðinna hæstv. ráðherra þá munu Sjálfstæðismenn auðvitað styðja þær tillögur sem eru til þess að hagræða í ríkisrekstri. En bara þessi stutta atkvæðagreiðsla sýnir að þetta snýst í rauninni ekki um það. Þetta er nú svona meira til að gefa skilaboð. Það er ekki nóg, virðulegi forseti. Við unnum nú mikið í hagræðingu og einföldun í mínu ráðuneyti á síðasta kjörtímabili og það hefði verið gott ef ákveðnar stofnanir hefðu verið þar undir líka þannig að menn hefðu getað tekið þær inn í. Ég hefði bara viljað sjá að þessi ríkisstjórn, sem er með þetta markmið sem við styðjum, að menn hefðu kannski farið þá leið. En skilaboðin eru skýr: Það er verið að gera þetta til að senda skilaboð. Það er bara ekki nóg. Við þurfum að einfalda og við þurfum að hagræða og þá þurfa menn að fara á dýptina og hugsa um hvaða leiðir séu bestar þegar menn eru að breyta Stjórnarráðinu.