umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Virðulegi forseti. Ég hlýt að fagna þessu enda þekki ég málið prýðilega. Það er mjög ánægjulegt að við séum hér að halda áfram með það starf sem er löngu hafið og reyndar hóf ég það í tíð minni sem utanríkisráðherra, vegna þess að það komu fram ábendingar um að við Íslendingar notuðum innleiðingar til að koma ýmsum hugðarefnum, annaðhvort stjórnmála eða embættismanna, inn í löggjöf án þess að þurfa þess. Hvað þýðir það á íslensku? Það þýðir að við erum að koma á meiri reglubyrði hjá okkur Íslendingum heldur en í þeim löndum sem við berum okkur saman við og keppum jafnvel við. Það allra versta er, og þetta kom fram í skýrslu sem var gerð að beiðni nokkurra þingmanna undir forystu hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur, að um 40% þeirra innleiðinga sem fóru í gegnum ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála á síðustu tíu árum höfðu gullhúðun í för með sér. Gullhúðun þýðir það að þú ert að setja meiri kvaðir á íslenskan almenning og á íslensk fyrirtæki heldur en þú þarft að gera með innleiðingunni. Auðvitað er löggjafanum heimilt, auðvitað er Alþingi Íslendinga heimilt að setja þau lög og reglur sem þykir rétt en það allra versta er, og það er augljóst og það liggur fyrir, að þingheimur og þjóð voru ekki meðvituð um hvað hér var á ferðinni. Þetta hefur ekki bara skaðað sérstaklega íslenskt efnahagslíf, atvinnulíf og þar af leiðandi íslenskan almenning heldur hefur þetta líka grafið undan því alþjóðasamstarfi sem við erum í. Það er enginn vafi að það hefur skaðað EES-samninginn vegna þess að við höfum talið að ýmislegt sem er reglur og lög í þessu landi sé komið út af samstarfinu en svo er ekki.
Ef ég man rétt, virðulegi forseti, þá er það svo og það kom fram í skýrslu sem var gerð, sem dr. Margrét Einarsdóttir gerði í kjölfar þessarar skýrslubeiðni sem ég vitnaði í hér áðan, þá sem dæmi var það þannig að rafmagnslagnir og -leiðslur áttu samkvæmt tilskipuninni að fara í mat á umhverfisáhrifum ef þær væru 40 km eða lengri. Innleiðingin í íslensku löggjöfina var 1 km eða lengri. Það er nokkurn veginn allt. Það er ekki margt sem er styttra en 1 km þegar kemur að þessu. Þetta kostar auðvitað mikla aukna reglubyrði, mikinn aukinn kostnað og skaðar samkeppnishæfnina, hækkar verð til almennings og grefur undan alþjóðasamstarfi.
Ég er mjög ánægður með það og hrósa hæstv. ráðherra fyrir að koma fram með þetta mál. Ég treysti því og fannst það að heyra á hæstv. ráðherra að þessir hlutir sem við hér ætlum að taka á og við vorum búin að skrifa út og skildum það frumvarp eftir hjá nýjum ráðherra, að það sé hér komið fram. Það er mikilvægt að hv. nefnd fari vel yfir þetta og skoði sömuleiðis þá skýrslu sem liggur til grundvallar. En þetta er bara fyrsta skrefið. Þetta er bara fyrsta skrefið því að það er af mjög miklu að taka. Forgangurinn hjá okkur var að fara í reglugerðarumhverfi og lög og reglugerðir sem snúa að orkumálunum en það er því miður af miklu meiru að taka.
Það er mjög gott, virðulegi forseti, ef við erum hér að sjá samstöðu um það að afhúða regluverkið, því að það er eitthvað sem er rétt og skynsamlegt að gera og það munu allir hagnast á því. Það er enginn vafi að þetta var komið langlengst í ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála. Hins vegar var það svo að þetta var komið áleiðis og var orðin stefna ríkisstjórnarinnar. Að vísu var það líka stefna fyrri ríkisstjórnar og það var tillaga sem ég flutti þá sem utanríkisráðherra að það væri sérstaklega tilgreint að allir ráðherrar sem kæmu með innleiðingarmál væru með það mjög vel skilgreint þannig að þingheimur væri meðvitaður um það hvar væri gengið lengra, hvar væri um húðun að ræða og hvað væri bein innleiðing. En það er augljóst að það hafði ekki gengið eftir. Þetta er auðvitað mjög stórt í þessum málaflokki, í umhverfis- og orkumálum, þ.e. við erum auðvitað með mjög stórt hátt hlutfall af innleiðingu þar. Þetta á sömuleiðis við og er mjög stórt þegar kemur að fjármálageiranum og ýmsu öðru samstarfi sem við tökum þátt í á grundvelli EES-samningsins.
Virðulegi forseti. Ég fagna því að þetta sé hér komið fram, þakka hæstv. ráðherra fyrir að gera það. Ég er þess fullviss að það góða fólk sem er í hv. þingnefnd sem um málið fjallar muni fara vel yfir málið. En ég vek athygli á því og legg áherslu á það að við vorum að fara í vegferð sem við vorum fullkomlega meðvituð um að myndi taka langan tíma. Ýmislegt hjálpar okkur á leiðinni, gervigreindin og ýmislegt annað gerir okkur þetta eitthvað auðveldara, en það liggur alveg fyrir að það verður að vera forgangsmál hjá hæstv. ríkisstjórn og hjá Alþingi Íslendinga að afhúða regluverk. Það verður að vera algjört forgangsmál. Við Íslendingar megum aldrei gleyma því að þótt við séum eyja erum við ekki eyland. Við erum í samkeppni við aðrar þjóðir og við þurfum alltaf að vera með augun á því að hafa hér samkeppnishæft atvinnulíf. Allir hagnast á því. Það er enginn sem tapar á því að íslenskt atvinnulíf sé samkeppnishæft, í það minnsta ekki á Íslandi. Það getur vel verið að einhverjir geri það í útlöndum sem þurfa að keppa við íslenskt atvinnulíf en það tapar enginn á því hér.
Þetta skref hér, þetta frumvarp, er jákvætt. Við erum ánægð með það, við styðjum það en betur má ef duga skal. Það er búið að vinna að þessu mjög lengi því að eins og ég hef nefnt hér þá er mjög einfalt að flækja en það er erfitt að einfalda. Núverandi ríkisstjórn fær mikla vinnu sem er búin að vera unnin í mörg ár og ég vona að ekki bara hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra heldur líka aðrir ráðherrar nýti sér þá vinnu og komi hér fram með sambærileg frumvörp því að við eigum að setja okkur það markmið að á næstu misserum þá eigum við að geta afhúðað allt sem hefur verið gullhúðað. Auðvitað eru ákveðnir þættir sem menn ákváðu að setja í löggjöfina út af einhverjum öðrum ástæðum. Kannski er það ekki allt sem flækir og kannski er það ekki allt sem þyngir regluverk. Það þarf að skoða. En það er grafalvarlegt mál að þingið og þjóðin hafi fengið slíkt regluverk, talið sig hafa gert það á grundvelli EES-samningsins en það var það ekki og því er verk að vinna hjá okkur öllum að vinda ofan af því. Þetta er gott skref og við styðjum það og ég hlakka til að afgreiða þetta mál og önnur því að þetta má bara vera byrjunin. Þetta má bara vera fyrsta skrefið með þessum hætti. Þetta er fyrsta frumvarpið sem kemur fram með þessum hætti, var tilbúið þegar hæstv. ráðherra kom inn í ráðuneytið en það má alls ekki hvika frá þeirri áætlun sem var farin af stað, það er að afhúða regluverkið sem við erum búin að innleiða í gegnum íslensk lög.