156. löggjafarþing — 11. fundur,  5. mars 2025.

umhverfismat framkvæmda og áætlana.

129. mál
[16:04]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Eins og hv. þingmaður kannski veit þá var ég í síðustu ríkisstjórn og þarsíðustu, í síðustu ríkisstjórn sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og þarsíðustu sem utanríkisráðherra. Ég get auðvitað ekki svarað með vissu nema um það sem við skoðuðum nákvæmlega, sem er í skýrslu sem dr. Margrét Einarsdóttir skrifaði og var gefin út og kynnt og er opin öllum almenningi. Þar kom fram, ef ég man rétt, að um 40% af gerðunum sem innleiddar voru, voru gullhúðaðar, 40%. Ég hafði áður unnið að þessu og fékk fólk til verka varðandi EES-samninginn í utanríkisráðuneytinu. Þar kom skýrt fram að við vorum að gera þetta en það var hins vegar ekki hægt að greina það niður á fagráðuneytin vegna þess að við vorum auðvitað bara með það sem sneri að utanríkismálunum, en við hlustuðum á hagsmunaaðila þar. Í kjölfarið var tekin þessi ákvörðun um að það væri mjög mikilvægt að þegar mál kæmu fram væri það mjög vel skilgreint þar sem væri húðað sérstaklega. Hins vegar, af því að ég er nú búinn að vera hérna í einhvern tíma, þá man ég þá tíð, þá voru þetta auðvitað minni innleiðingar, að það þótti sjálfsagt að þá komu hæstv. ráðherrar og sögðu það bara skýrt að málin væru að mestu leyti byggð á innleiðingu. Þá var þessi umræða ekki komin á þann stað sem hún er á núna og menn kannski áttuðu sig ekki á því hvert þeir voru að fara.

Það sem ég er að segja er þetta: Ég ákvað og hef ákveðið í þessu máli að leita ekki að blórabögglum heldur leita að lausnum. Ef þú ert að spyrja um tvær síðustu ríkisstjórnir þá tel ég harla ólíklegt að þær ríkisstjórnir sem á undan komu hafi verið eitthvað betri. Þetta var líka tíu ára tímabil sem var tekið í skýrslunni, ef menn hefðu tekið 20 ár þá hefði tekið lengri tíma að skrifa skýrsluna. En það liggur alveg fyrir, algerlega skýrt, að það er verk að vinna.