156. löggjafarþing — 11. fundur,  5. mars 2025.

umhverfismat framkvæmda og áætlana.

129. mál
[16:08]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú verð ég bara að biðja hv. þingmann að fylgjast aðeins með ræðum. Af hverju heldur hv. þingmaður að þetta mál sé flutt hérna? Heldur hv. þingmaður að það sé þessari ríkisstjórn að þakka? Heldur hann að hún hafi unnið þessa vinnu? Þetta var gert allt á síðasta kjörtímabili. Hv. þingmaður kemur núna og segir: Ég er að hrósa hæstv. ráðherra hér, enda ástæða til. Ástæðan fyrir því að málið er hérna er vegna þess að það er búið að vinna það. Ástæðan fyrir því að þetta er 40% er vegna þess að það var stefna síðustu ríkisstjórnar að afhúða. Þess vegna er það til komið. Ekkert að þakka. Ég var nú ekki að biðja um neinar þakkir en ef menn draga þá ályktun að hér hafi allt í einu komið ný ríkisstjórn og bara gert þetta allt saman þá er ekkert til í því. Við skulum bara vona að þetta verði ekki eina málið því það voru komnar áætlanir um það og komin af stað vinna við það að afhúða. Það var ákveðið af síðustu ríkisstjórn. Ekkert að þakka. Það hefði verið alveg frábært að koma að ráðuneytinu þá og vera með þessa vinnu sem núverandi hæstv. ríkisstjórn er með. Það hefði verið algerlega frábært. Það var bara ekki þannig. Við þurftum að vinna alla þessa vinnu frá byrjun. Eins og ég segi, ég var ekki að biðja um neinar þakkir, en þegar menn koma hér og skreyta sig með þessum fjöðrum og spyrja: Af hverju í ósköpunum gerðuð þið ekki neitt? þá bið ég um að menn setji sig aðeins inn í mál. (Gripið fram í.) Ástæðan fyrir því að þetta mál er hér er vegna þess að við unnum það. (GAS: … gullhúðun.) Ha? Hv. þingmaður er að góla eitthvað sem er óskýrt.

(Forseti (BrynH): Forseti biður hv. þingmenn um að vera ekki í samtali. Hv. þingmaður sem stendur í pontu hefur orðið.)

Já, gott. Höfum það alveg skýrt. Ekkert að þakka. En ég vona að hæstv. ríkisstjórn haldi áfram á sömu braut og við munum styðja hana í því. Það er líka mjög mikilvægt að halda áfram á sömu braut og við munum svo sannarlega fylgjast með því að það verði gert.