156. löggjafarþing — 11. fundur,  5. mars 2025.

umhverfismat framkvæmda og áætlana.

129. mál
[16:14]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil nú nota tækifærið og taka undir með hæstv. ráðherra og ég vil líka segja að við styðjum hæstv. ráðherra þegar hann segir að fleiri ráðuneyti þurfi að skoða þetta. Eins og hæstv. ráðherra vísaði til þá er þetta stórmál. Ég veit ekki hvað við getum unnið mikið með því að fara að rannsaka nákvæmlega hver gerði hvað og af hverju. Þegar maður skoðar skýrslu dr. Margrétar Einarsdóttur, sem ég hvet alla þingmenn til að lesa, þá er áhugavert að sjá breytingarnar sem urðu frá því sem er tilskipunin og innleiðing og að því sem verður svo að íslenskum lögum. Það er umhugsunarefni og það er spurning: Hvar gerðist það á leiðinni að menn ákváðu að gera íslensku atvinnulífi erfiðara fyrir? Mér finnst það vera mjög áhugaverð spurning, er ekki með svarið. Eins og ég nefndi hérna áðan þá er ekkert mjög langt síðan þetta komst inn í umræðuna. Í tíð minni sem utanríkisráðherra gerði Gunnar Pálsson sendiherra skýrslu um EES og áskoranir þar og síðan var þekktari skýrsla sem Björn Bjarnason, Unnur Brá Konráðsdóttir og fleiri gerðu um EES-samstarfið. Þá er þetta dregið meira fram. Það er áhugavert vegna þess að ég heyrði ekki í síðustu ríkisstjórn eða þarsíðustu ríkisstjórn andstöðu við það að menn væru með það mjög skýrt hvað væri innleiðing og hverju væri bætt við. Það var ekki pólitískur ágreiningur um það en augljóst miðað við það sem við erum að horfa upp á núna að það gerðist samt.

Ég hef haft áhyggjur af því að vald embættismanna sé að aukast og sé bara of mikið, það sé ekki nógu skýrt hver beri ábyrgð. Þegar kemur að málum sem virkilega skipta máli er gagnsæið ekki nægilega mikið og áhyggjur mínar hafa ekki minnkað. Það sem ég er hins vegar ánægður með er að þeir sem hér hafa talað — og það sem skiptir mestu máli er að þetta mál er hér fram komið frá hæstv. ráðherra af því að hann gat tekið frumvarpið og sett í það tætarann. Það var alveg valkostur hjá hæstv. ráðherra. Hann ákveður hins vegar að koma fram með það og lýsir því sömuleiðis hér yfir, sem ég styð hæstv. ráðherra í, að aðrir ráðherrar í þessari ríkisstjórn fari í sömu skoðun og var gert í minni tíð í ráðuneytinu. Það er einfaldara að gera það heldur en það var þá vegna þess að það eru ýmis hjálpartæki, og þá sérstaklega gervigreindin, sem hjálpa okkur virkilega á þeirri vegferð. Það skal þó tekið fram að það voru önnur ráðuneyti líka sem voru byrjuð á þessu en við vorum komin lengst. Ég held að við þurfum ekkert að fara hér yfir ástæðurnar fyrir því að þetta er skynsamlegt. Ég er bara að vonast til þess að hér sé góð samstaða um að halda áfram á þessari vegferð en verð að viðurkenna að ég sá ástæðu til þess að setja aðeins ofan í við hv. þingmann sem vildi ekki kannast við verk fyrri ríkisstjórnar. Það sem er gott hjá þessari ríkisstjórn er að halda áfram með þessi góðu mál og við hrósum þeim fyrir það en sitjum ekki undir því að hafa ekki gert neitt í málinu því að málið var ekki tilbúið, það var ekki flutt hérna fram. Það var engin skýrsla til að vitna í og skoða eða skýrslur á þarsíðasta kjörtímabili nema vegna þess að menn voru nákvæmlega að vinna að því að afhúða íslenskt regluverk og ég vonast til þess og treysti því að í vor þá munum við stíga fyrsta skrefið með því að samþykkja þetta frumvarp, annaðhvort svona eða þá með góðum breytingum.