raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir bæði að leggja fram frumvarpið og sömuleiðis fyrir ræðuna. Svona fyrir þá sem hlusta á þetta og bara til að menn átti sig á nákvæmlega um hvað er að ræða þá er þetta mál eins og ég skil það, og ég hef aðeins verið að reyna að bera þetta saman frá orði til orðs frá síðasta frumvarpi, þá felst breytingin í því að sú breytingartillaga sem atvinnuveganefnd var með á sínum tíma er komin inn í frumvarpstextann. Kannski bara fá það skýrt. Eins og ég skildi hæstv. ráðherra þá kom fram í meðförum nefndarinnar, og það er tilgreint í greinargerðinni, með leyfi forseta:
„Eins og tilgreint er að framan var sambærilegt frumvarp lagt fram á 153. og 154. löggjafarþingi. […] Frumvarp það sem hér er lagt fram tekur mið af fyrri umfjöllunum atvinnuveganefndar. Þannig leiða ákvæði frumvarpsins sem ætlað er að greiða fyrir mögulegri þátttöku stórnotenda í jöfnunarorkumarkaði Landsnets af áliti og breytingartillögu meiri hluta atvinnuveganefndar á 154. þingi.“
Ég skil það sem svo eftir lestur frumvarpsins og greinargerðar að hér sé um sambærilegt frumvarp að ræða, eins og segir orðrétt á bls. 7 í frumvarpinu, en síðan búið að bæta inn breytingartillögunni frá hv. atvinnuveganefnd sem hæstv. ráðherra vísaði til.