156. löggjafarþing — 11. fundur,  5. mars 2025.

raforkulög.

130. mál
[16:44]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Forseti. Miðað við orðanna hljóðan sé ég ekki breytinguna á eðli frumvarpsins. Það segir á bls. 7, eins og ég nefndi hér áðan og svo ég vitni í það aftur, með leyfi forseta: „Eins og tilgreint er að framan var sambærilegt frumvarp lagt fram á 153. og 154. löggjafarþingi.“ Og síðan er vísað í umfjöllun atvinnuveganefndar. Það má vel vera og það er gott ef hér eru komnar einhverjar miklar breytingar sem ná markmiðum frumvarpsins sem við erum sammála um og auðvelda það. En svona í fljótu bragði með því að renna í gegnum frumvarpið og athugasemdirnar þá finnst mér ekki vera skýrt að hér sé um að ræða stórkostlegar breytingar frá sambærilegu frumvarpi, eins og það er kallað og svo ég vitni í það. Þegar ég fer í gegnum fyrstu efnisgreinarnar í það minnsta þá sýnist mér þetta allt saman vera orðrétt. Hins vegar skiptir máli og nú er ég ekki að segja — það má vera og ég bara vona að það sé eitthvað sem er til bóta og þá er það bara mjög vel. Ef svo er þá bara fögnum við því. En við lestur frumvarpsins og greinargerðarinnar er ekki hægt að sjá að hér sé um neinar róttækar breytingar að ræða að öðru leyti en því, sem er í sjálfu sér kannski engin róttækni og ég leit fyrst á það sem viðbót sem menn komu með eftir umfjöllun nefndarinnar og það er til bóta að bæta við þeim breytingartillögum sem hv. fyrrverandi atvinnuveganefnd kom með og olli nokkrum deilum, þó að ég sé sammála hæstv. ráðherra um að þær deilur voru byggðar á misskilningi.