156. löggjafarþing — 11. fundur,  5. mars 2025.

rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.

51. mál
[17:41]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu sem á sér stað núna í þingsalnum um þetta mál og ég vil sérstaklega þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir að halda þessu máli á lofti, ekki bara núna á þessu þingi heldur líka undanfarin ár. Ég veit að hv. þingmaður hefur haft mikið fyrir því að leita til þingmanna um að styðja þetta mál. Það er mjög ánægjulegt að sjá að það er breiður og víðtækur stuðningur við þetta, enda held ég að það sé nú þannig hjá okkur öllum, sama hvar við stöndum í pólitík, að við viljum gera betur í velferðarsamfélaginu okkar. Við viljum grípa fólk betur. Við viljum auðvitað reyna að fækka sjálfsvígum og lyfjaandlátum. Þetta þingmál finnst mér vera alveg hreint prýðilegt innlegg inn í þá umræðu og það allt saman þannig að ég styð þetta alveg heils hugar.

Eitt af því sem þetta mál gengur auðvitað út á er svolítið að afla upplýsinga og kannski að samræma gögn og gagnasöfn þannig að menn fái betri yfirsýn yfir það hvað um er að etja og þar held ég að sé hægt að gera miklu betur en gert er í dag. Það er þannig hjá okkur í Viðreisn að við erum einir sjö þingmenn á þessu máli, styðjum það af heilum hug. Ég er svolítið sammála því sem hér hefur komið fram að það er eftirtektarvert þegar kemur að sjálfsvígum og sjálfsvígsforvörnum hvað margir einkaaðilar, jafnvel syrgjandi foreldrar, hafa farið af stað í sorginni og lyft í raun grettistaki til að aðstoða og bæta samfélagið á þann veg að það sé mögulega hægt að koma í veg fyrir önnur sjálfsvíg.

Það sem ég myndi kannski sérstaklega vilja nefna hér er það sem snýr að vímuefnavandanum, ofur einfaldlega vegna þess að það eru ákaflega mörg sjálfsvíg í hópi þeirra sem eru með fíknisjúkdóm og það eru auðvitað ákaflega mörg andlát sem má tengja við lyfjanotkun, þ.e. óhappaeitranir verða. Menn eru, svo maður sletti, að „óverdósa“. Menn eru kannski að byrja aftur í neyslu, taka skammtinn sem þeir voru að nota áður en þeir hættu og eru þar af leiðandi komnir í of stóran skammt og gæta ekki að sér og deyja. Þetta er ofur einfaldlega staðan og það að skoða orsakaferli eða aðdraganda til að mynda að sjálfsvígum finnst mér alveg feikilega mikilvægt.

Ég hef svolítið verið að tala um að öll tölfræði í þessu er stundum svolítið erfið. Það er alveg vitað að það eru fleiri en 100 sem látast úr fíknisjúkdómnum á ári hverju en þetta er ekkert endilega skráð þannig. Hluti af þessu eru sjálfsvíg. Hluti af þessu eru einhverjar eitranir, ofskömmtun. Eitthvað af þessu getur verið slys eða bara hreinlega að skrokkurinn er að gefa sig eftir langvarandi átök neyslunnar og það endar kannski með einhverri bilun í líkamanum sem er síðan auðvitað ekkert skráð undir fíknisjúkdóm, þannig að mér finnst bara mjög brýnt það sem er svona eitt meginþemað í þessu máli, að taka svolítið saman upplýsingar og reyna að fá okkur til að skilja. Ég skil þetta mál þannig að þarna sé ofur einfaldlega einmitt verið að reyna að greina og skilja, og greina og skilja þá til að geta komið í veg fyrir einhver dauðsföll. Við getum aldrei komið í veg fyrir þau öll en við getum fækkað þeim og við getum bætt stöðu fólks. Við gerum það auðvitað með því að viða að okkur upplýsingum og vinna úr þeim á skipulegan hátt eins og þetta þingmál gengur út á.

Þegar ég tala um fíknisjúkdóminn og sjálfsvíg sem verða stundum því miður endapunkturinn á þeim sjúkdómi þá er auðvitað aðdragandinn að því alveg óheyrilega langur. Það geta verið áratugir, getur verið mikil áfallasaga, alls konar atriði sem þarft er að greina, skoða og skilja vegna þess að þessi sjúkdómur er auðvitað ekki til í neinu tómarúmi. Það er reyndar stundum þannig að þegar endapunkturinn eftir langvarandi veikindi er sjálfsvíg þá kannski fara menn ekkert endilega á dýptina vegna þess að það er mikið búið að ganga á og aðstandendur jafnvel búnir að sætta sig við að þetta gæti mögulega orðið niðurstaðan eftir langvarandi neyslu en einhvers staðar byrjar þetta allt saman. Einhvers staðar verða einhver áföll eða það gerist eitthvað á lífsleiðinni sem hrindir af stað þessari atburðarás sem endar síðan með sjálfsvígi. Mér finnst mjög brýnt að reyna að skilja þetta betur. Ég held að allir sem eru með fíknisjúkdóm eða aðstandendur sem hafa mikið velt fyrir sér vanda þeirra sem eru með fíknisjúkdóm þrái oft svolítið betri og raunhæfari upplýsingar um það hvað verður síðan til þess að svona fer. Ég skil þetta þingmál þannig að það taki þó að einhverju leyti svolítið á því.

Þegar við erum að tala um lyfjaandlátin og óhappaeitranir eða allt þetta — ég var nú að eiga orðastað hér áðan við hv. þm. Ingibjörgu Isaksen um það einmitt hvernig tölfræðin er stundum í þessu, allir auðvitað að reyna að gera sitt besta en það má kannski skilja annað stundum á ýmsa vegu, það var þannig árið 2023 að það voru 56 Íslendingar sem létust vegna lyfjaeitrunar. Það eru fleiri heldur en búa í smæsta sveitarfélagi landsins, í Árneshreppi, bara svo við setjum tölurnar pínulítið í samhengi. Þarna var líka eitt barn undir 18 ára aldri og mér finnst það auðvitað mjög sláandi. Þetta er einstaklingur sem er ekki kominn með aldur til að kaupa áfengi en deyr með þessum hætti. Þarna eru líka 38 einstaklingar á aldrinum 18–44 ára. Við getum ímyndað okkur hvað það eru mörg börn sem þarna verða móðurlaus eða föðurlaus, alla sorgina sem er á bak við það. Þarna eru 17 á aldrinum 45–74 ára. Þetta eru sömuleiðis feður og mæður, afar og ömmur og það var alveg ágætlega farið yfir það hér hjá málshefjanda og fleirum einmitt hvað það eru margir sem fá á sig þungt högg þegar eitthvað svona gerist í fjölskyldu. Mér finnst oft ágætt að við reynum svolítið að átta okkur á því hvað er á bak við tölurnar þegar við erum að kasta fram þessum tölum, reyna jafnvel að hugsa bara pínulítið myndrænt. Ef við setjum 56 einstaklinga saman í hóp er þetta eiginlega bara næstum því allur þessi salur hér fullur af fólki. Ég er ekki að reyna að gera einhverja dramatík eða eitthvað svoleiðis, það er bara oft ágætt að reyna að skilja þetta þannig.

Ég hef áður rakið það og ætla að gera það í niðurlagi míns máls, að ég átti í miklum samskiptum við föður sem missti tvo syni sína á sama sólarhringnum í íbúð í Kópavogi í ágúst á síðasta ári. Það eru lyfjaandlát, það eru slys. Þetta voru tveir ungir menn sem ætluðu ekki að deyja. Þetta voru tveir ungir menn sem eru með ákveðna sögu og áttu snertifleti við heilbrigðiskerfið og alls konar aðila í því að reyna að ná sér upp úr ákveðnum vanda sem tókst því miður ekki. Þarna gerist það bara að það verður alveg óskapleg sorg í einni og sömu fjölskyldunni á stuttum tíma. Ég skil þetta mál hér sem pínulítið viðbragð við þessu öllu, eitthvað til að reyna að dýpka skilning okkar á því hver aðdragandinn að svona er. Ég tek það skýrt fram að faðir bræðranna tveggja er mjög áfram um að þeirra saga og þeirra örlög séu rædd í samfélaginu sem partur af einhverjum samfélagsvanda sem við þurfum að taka á. Mál þeirra er skráð og þarna er allt í einu einhver fjölskylda með dauðsföll í fanginu og gríðarlega sorg og allt þetta. Þessi faðir var einmitt alltaf líka mikið að reyna að velta fyrir sér: Bíddu, hver er aðdragandinn? Hvað er það sem gerist? Er eitthvað sem á að grípa eða getur gripið? Eins og ég nefndi hérna í upphafi getum við aldrei komið í veg fyrir allt en við getum gert miklu meira til að skilja og fækka þessum dauðsföllum, sama hvort við erum að tala um sjálfsvíg eða þá einhverjar óhappaeitranir. Sjálfsagt er hægt að skilgreina út frá alls konar gagnagrunnum að eitthvað eigi þarna undir og annað ekki en ég held að við séum öll svolítið með hausinn á sama stað með það hvert við viljum fara með þetta.

Ég ætla svo sem ekkert að hafa þetta lengra. Ég ætla þó að nefna að þessi ríkisstjórn hefur talað um að setja geðheilbrigðismál í forgang og setja það í forgang að reyna að lyfta einhvers konar grettistaki þegar kemur til að mynda fólki sem er með fíknisjúkdóm. Þar á m.a. að vinna að einhverju leyti á vinnu sem farin var af stað á síðasta kjörtímabili, starfshópar til að mynda sem fyrrverandi heilbrigðisráðherra setti af stað, af því að þetta er ekki eitthvað sem við eigum að ræða um sem einhverja flokkapólitík eða stjórn/stjórnarandstaða eða eitthvað, þetta er bara samfélagslegt mein og samfélagsleg áskorun sem við hljótum öll að takast á við í sameiningu.

Ég ætla þá bara að ítreka í lokin þakkir mínar til hv. þm. Ingibjargar Isaksen fyrir að halda þessu máli á lofti og leggja þetta fram og afla því svona víðtæks stuðnings í þinginu. Mér finnst það vera mjög mikilvægt.