rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.
Virðulegi forseti. Mig langaði bara að koma upp til að þakka hv. þm. Kolbrúnu Baldursdóttur fyrir hennar ræðu hér og líka stuðninginn við þetta mál. Það er áhugavert að heyra hana fjalla um sína reynslu og þekkingu á þessu sviði. Ég fagnaði því þegar hún var að tala um að snemmtæk íhlutun væri mikilvæg, sem skiptir máli, að grípa strax til aðgerða þegar það sjást einhver merki um að börn eða ungmenni þurfi aðstoð og það þurfi einmitt að skoða í heild sinni líðan barna. Þar kemur þetta allt líka inn á m.a. farsæld barna sem hefur verið í innleiðingu núna undanfarin ár og skiptir máli.
En mig langaði að spyrja hv. þingmann sem kom inn á að hún vildi eyða biðlistum. Ég held að við séum öll þar að við viljum búa í samfélagi þar sem hægt er að ganga þjónustunni vísri og þurfa ekkert að bíða eftir henni en ég velti fyrir mér hvernig hv. þingmaður sér það fyrir sér, hvernig við getum ráðist í það verkefni að eyða biðlistum hér á landi.