rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ég er alveg hjartanlega sammála henni að við þurfum að fjölga sérfræðingum. Þeir eru ekkert gripnir úr trénu. Þetta er flókið ferli og það er búið að gera ýmislegt til að fjölga hinum ýmsu sérfræðingum.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann hvort hún væri sammála nálgun okkar í Framsókn, af því hún nefndi sérstaklega landsbyggðina og að fjölga sérfræðingum á landsbyggðinni, þar sem við höfum talað fyrir því að það eigi að líta til einhvers konar ívilnana, hvort sem þær ganga lengra hvað varðar niðurgreiðslu á námslánunum, stuðningi, einhvers konar skattafslætti því fjær sem þú ferð frá höfuðborginni, einmitt til að laða að sérfræðinga þar sem skortir þjónustuna, þar sem þarf að fara um langan veg. Við getum gert ýmislegt með fjarþjónustu og við getum gert ýmislegt í teymum en stundum þurfum við að fá sérfræðinga til að sinna vissri grunnþjónustu. Mig langaði að spyrja hv. þingmann hvort hún væri sammála þessari nálgun okkar í Framsókn.