156. löggjafarþing — 11. fundur,  5. mars 2025.

rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.

51. mál
[18:28]
Horfa

Flm. (Ingibjörg Isaksen) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég kem bara hingað upp til að þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir ræðuna og vil kannski segja það líka með þrautseigjuna að þegar maður trúir á eitthvert mál og eitthvert málefni þarf maður að fylgja því eftir. Ég hef trú á því líka að þrautseigjan skili árangri þegar fram í sækir, þannig að ég mun halda áfram þangað til þessi tillaga fer í gegn á meðan ég sit hér á þingi. En þetta voru áhugaverðar upplýsingar sem við fengum hjá hv. þingmanni í tengslum við ópíóíðaeitrið og ég tek bara undir hans orð, ég vona að þessi tillaga muni ná brautargengi hér innan þingsins. Ég þakka fyrir mjög góðar umræður hér í dag.