156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

staða fjölmiðla á Íslandi.

[11:04]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Frú forseti. Ég biðst innilega afsökunar á því að fulltrúi Samfylkingarinnar í ríkisstjórninni sé ekki búinn að komast til botns í þeim hlutum á tveimur mánuðum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft áratugi til að skoða. [Hlátur í þingsal.] (Gripið fram í.) En ég skal svo sannarlega lofa hv. þingmanni því að RÚV verður skoðað eins og annað, vegna þess að alveg eins og hv. þingmaður talaði um þá eru þetta að einhverju leyti samverkandi þættir. Staða RÚV er fyrirferðarmikil á fjölmiðlamarkaðnum og það verður skoðað. Hins vegar mun ég ekki standa fyrir því að RÚV, okkar dýrmæta almenningsútvarp, verði veikt þannig að það geti ekki sinnt hlutverki sínu. En ég skal líka koma fram, koma hv. þingmanni á óvart, næsta haust með alvörutillögur um úrbætur á fjölmiðlamarkaði.